Nautasteikin sem er að trylla karlpeninginn

Ljósmynd/Men´s Health

Nú þegar nauta­kjöt fæst langt­um ódýr­ara hér á landi er ekki úr vegi að birta þá al­g­irni­leg­ustu steik­ar­upp­skrift sem sög­ur fara af. Upp­skrift þessi leit fyrst dags­ins ljós fyr­ir rúm­um mánuði og hef­ur síðan þá verið gríðarlega vin­sæl á vefsíðum helguðum karl­mönn­um og áhuga­mál­um þeirra. Þar virðist grill­menn­ing vera af­skap­lega vin­sæl og greini­legt er að eng­inn er maður með mönn­um á þeim slóðum nema að kunna að grilla góða steik.

Þar sem við elsk­um líka að grilla og borða góðar steik­ur þá er ekki úr vegi að birta þetta þar sem það viðrar al­veg hreint ágæt­lega til útielda­mennsku.

Við mæl­um svo að sjálf­sögðu með því að þið skellið í al­vöru bernaise í bland­ara sem tek­ur bara tvær mín­út­ur eða svo og set­ur óneit­an­lega tón­inn fyr­ir góða kvöld­stund.

p.s. þessi frétt er ekk­ert grín. Upp­skrift­in er í al­vöru svona ein­föld... og hún er að gera allt vit­laust.

Ljós­mynd/​Men´s Health

Nautasteikin sem er að trylla karlpeninginn

Vista Prenta

Nauta­steik­in sem er að trylla karlpen­ing­inn

  • Eins marg­ar mynd­ar­leg­ar steik­ur og þig lang­ar að grilla. Þú ræður hvaða vöðva þú tek­ur en á mynd­inni er verið að grilla rib-eye nauta­steik.

Aðferð

  1. Kveiktu upp í grill­inu. Ef þú ert með kola­grill er nauðsyn­legt að kveikja vel upp í kol­un­um og ef það er gas þá kveikja og hafa lokið á meðan grillið hitn­ar vel (við vænt­um þess að þið kunnið þetta).
  2. Kryddið steik­urn­ar með salti og pip­ar og skellið á grillið þegar það er orðið vel heitt. Ekki er úr vegi að pensla grind­ina á grill­inu til að tryggja að kjötið fest­ist ekki við.
  3. Grillið eins og þarf og snúið reglu­lega. Passið bara að grilla kjötið alls ekki of mikið og leyfið kjöt­inu að hvíla þegar þið takið það af. Það er al­gjört lyk­il­atriði að bíða með að skera kjötið uns það hef­ur fengið að „jafna“ sig ögn þannig að all­ur saf­inn leki ekki úr því.
  4. Flókið er það ekki en við full­yrðum engu að síður að það er mun flókn­ara að grilla en marg­ur held­ur þannig að fylg­ist vel með kjöt­inu og munið að bet­ur er of lítið elduð steik held­ur en of mikið!

Nokk­ur skot­held ráð:

  • Heit­trúaðir grill­ar­ar eru mikið á móti notk­un gasgrilla. Að þeirra sögn eru kol það eina sem vit er í.
  • Viðarspæn­ir ger­ir mikið fyr­ir bragðið. Best er að nota spæni úr ávaxta­trjám. Gott er að leggja hann í bleyti deg­in­um áður því þá kem­ur meiri reyk­ur sem skil­ar sér í betra og meira bragði.
  • Snjallt er að pakka spæn­in­um í álp­app­ír og setja á kol­in. Þá kem­ur meiri reyk­ur. Passið ykk­ur bara að hafa reyk­gat.
  • Hafið öll áhöld hrein. Það vill oft gleym­ast að þrífa grillið eft­ir notk­un. Best er að leyfa mat­araf­göng­um á grind­inni að brenna vel og bursta þær svo hressi­lega af með góðum vír­bursta. Sama gild­ir um áhöld. Hrein­læti skipt­ir miklu máli.
  • Gott er að bleyta vel í eld­húspapp­ír eða visku­stykki með matarol­íu og smyrja grill­grind­ina þannig. Þá fest­ist mat­ur­inn síður við.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert