Chia-grautur sem tryllir bragðlaukana

Ljósmynd/Minimalist Baker
Chia-graut­ur hef­ur hingað til ekki verið flokkaður sem gour­met-mat­ur en á því er að verða breyt­ing. Þessi upp­skrift er í senn mein­holl og nær­ing­ar­rík auk þess sem hún býður upp á skemmti­legt til­brigði við fræga am­er­íska upp­skrift sem er kannski best að fjalla ekk­ert of mikið um hér enda gæti gætt vissra for­dóma.
Um er að ræða chia-graut sem er frek­ar frá­bær auk hálf­gerðs mauks (e. compote) sem búið er til úr blá­berj­um, app­el­sínusafa og chia-fræj­um.
Virki­lega skemmti­leg út­færsla sem við erum sér­lega hrif­in af.

Chia-grautur sem tryllir bragðlaukana

Vista Prenta
Chia-graut­ur sem tryll­ir bragðlauk­ana
Blá­berja­blanda
  • 140 g blá­ber, fersk eða fros­in
  • 1 msk. app­el­sínusafi
  • 1 msk. chia-fræ
Chia-graut­ur
  • 240 ml ósætt möndl­umjólk
  • 120 ml létt-kó­kos­mjólk
  • Val­frjálst: 1 tsk. vanillu­drop­ar
  • 1-2 msk. hlyns­íróp
  • 3 msk. hnetu­smjör, veljið holla teg­und
  • 60 g chia-fræ
  • Val­frjálst: Blá­ber til að skreyta með

Aðferð

  1. Hitið blá­ber og app­el­sínusaf­ann á lít­illi pönnu eða í potti þar til bland­an er far­in að sjóða. Lækkið hit­ann og látið malla í tvær mín­út­ur eða svo. Takið þá af hell­unni og bætið chia-fræj­un­um sam­an við.
  2. Deilið sós­unni jafnt í þrjár skál­ar eða því sem þið ætlið að bera graut­inn fram í. Setjið í kæli.
  3. Setjið möndlu- og kó­kos­mjólk í bland­ara ásamt vanillu­drop­un­um (val­frjálst), sírópi og hnetu­smjöri. Blandið vel sam­an. Smakkið til.
  4. Bætið chia-fræj­un­um sam­an við en ekki mauka vel því þið viljið ekki tæta fræ­in í sund­ur. Setjið í kæli í tíu mín­út­ur eða svo. Takið því næst úr kæli og hrærið aðeins í. Hellið síðan í skál­arn­ar sem búið var að setja blá­berja­blönd­una í.
  5. Setjið plast­filmu yfir og stingið í kæli í 1-2 tíma (helst yfir nótt).
  6. Áður en þið berið graut­inn fram er gráupp­lagt að skreyta hann með smá hnetu­smjöri og blá­berj­um.
  7. Geym­ist í kæli í 3-4 daga.
Svona er bláberjamaukið búið til.
Svona er blá­berjamaukið búið til. Ljós­mynd/​Mini­mal­ist Baker
Grauturinn undirbúinn.
Graut­ur­inn und­ir­bú­inn. Ljós­mynd/​Mini­mal­ist Baker
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert