„Pönnsuklám“ að hætti læknisins

Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson

Lækn­in­um í eld­hús­inu, Ragn­ari Frey Ingvars­syni, er ým­is­legt til lista lagt en þessi nýj­asta upp­skrift slær öllu við. Sjálf­ur kall­ar hann þetta „pönnsuklám“ sem okk­ur þykir í senn bráðfyndið og skemmti­lega óviðeig­andi en jafn­framt vill hann meina að þetta sé einn magnaðasti þynnku­bani sem sög­ur fara af. Sjald­an lýg­ur lækn­ir­inn og við birt­um þessa upp­skrift með bros á vör, sann­færð um að næstu helg­um sé hér með bjargað.

„Pönnsuklám“ að hætti læknisins

Vista Prenta

Pönnsuklám; bei­kon- og ostapönnukaka með steiktu eggi, fínt skor­inni púrru og steikt­um tóm­at

  • 2 boll­ar hveiti
  • 2 tsk. lyfti­duft
  • 1 tsk. mat­ar­sódi
  • 1 tsk. salt
  • 2 egg
  • 3 dl mjólk
  • 3 epli
  • 2-3 msk. smjör til steik­ing­ar
  • bei­kon (ad li­bidum - háð lík­am­legri líðan) 
  • nokkr­ar lúk­ur af chedd­arosti
  • fullt af eggj­um

Aðferð:

  1. Setjið hveiti í skál, svo salt, lyfti­duft og mat­ar­sóda.
  2. Skiljið hvít­urn­ar frá eggj­ar­auðunum og þeytið með písk þangað til þær eru hálfstífþeytt­ar.
  3. Hrærið deigið sam­an og blandið svo eggja­hvít­un­um sam­an við - var­lega, með sleif eða sleikju - við vilj­um ekki slá loftið úr þeim.
  4. Hitið grillið - í dag er kjör­inn dag­ur til að elda ut­an­húss.
  5. Veljið álegg. Það er metið eft­ir frammistöðu gær­kvölds­ins. Í mína pönnsu fóru tvær sneiðar af bei­koni, all­ur þessi ost­ur, og svo smá púrra - maður verður alltaf að hafa græn­meti með!
  6. Steikið bei­kon.
  7. Já, og tóm­at, hann ku vera full­ur af andoxun­ar­efn­um - og þeirra er þörf í dag!
  8. Bræðið smjör.
  9. Byrjið að steikja pönnu­kök­una.
  10. Saxið bei­kon.
  11. Og dreifið því svo á pönns­una.
  12. Svo rif­inn ost. Nóg af rifn­um osti.
  13. Steikið egg, sunnysi­de up!
  14. Snúið pönnu­kök­unni til að steikja ost­inn.
  15. OMG!
  16. Hví­lík feg­urð sem í frels­ar­an­um felst!
  17. Þið hljótið að sjá að þetta hafi verið ótrú­lega gott! 
  18. Nú er maður, sko, til í tuskið! 
  19. Bon app­e­tit!
Ljós­mynd/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
Ljós­mynd/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
Ljós­mynd/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
Ljós­mynd/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
Ljós­mynd/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
Ljós­mynd/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert