Lambaborgari sem bragð er af

ljósmynd/Bon Appetit

Þessi borg­ari er skemmti­legt til­brigði við hefðbund­inn borg­ara og er sér­lega skemmti­leg­ur. Hann ber að grilla og hægt er að und­ir­búa hann vel áður. Hann er stökk­ur, snjall, sniðugur, bragðmik­ill og ólík­ur flest­um þeim borg­ur­um sem þú hef­ur áður smakkað.

Lambaborgari sem bragð er af

Vista Prenta

Lamba­borg­ari sem bragð er af

  • 1.200 gr. lambahakk
  • 1 lauk­ur, meðal­stór og smátt saxaður
  • ¾ bolli fersk stein­selja, söxuð
  • 1 msk. kórí­and­er
  • ¾ tsk. cum­in
  • ½ tsk. kanill
  • 2 tsk. sjáv­ar­salt
  • 1 ½ tsk. svart­ur pip­ar, nýmalaður
  • 60 ml ólífu­olía (plús smá auka til að nota þegar grillað er)
  • 8 pítu­brauð (forskor­in)

Aðferð:

  1. Blandið sam­an lambahakki, stein­selju, kórí­and­er, cum­in, kanil, salti, pip­ar og 60 ml af olíu í stóra skál og blandið vel sam­an með gaffli. Setjið lok yfir skál­ina og kælið í að minnsta kosti klukku­tíma.
  2. Hitið grillið upp í miðlungs­hita og berið olíu á grind­ina. Takið kjöt­blönd­una út úr ís­skápn­um. Takið pítu­brauðin og opnið þau var­lega. Mokið fyll­ing­unni inn með skeið og passið að dreifa henni vel inni í brauðunum þannig að borg­ar­arn­ir verði sem jafn­ast­ir í lag­inu.
  3. Grillið pít­urn­ar þar til fyll­ing­in er orðin elduð og brauðið er orðið stökt eða í um 5 mín­út­ur á hvorri hlið.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert