Einföldustu pönnukökur í heimi

Girnilegt.
Girnilegt. ljósmynd/Food52

Stund­um rek­umst við á upp­skrift­ir sem eru svo ótrú­leg­ar að við hrein­lega verðum að prófa þær. Heim­ild­in er nokkuð traust þannig að það má svo sann­ar­lega láta á þetta reyna en þetta er sagt bæði bragðgott og sér­lega auðvelt.

Við erum að tala um pönnu­kök­ur sem eru ein­ung­is gerðar úr tveim­ur hrá­efn­um: eggj­um og ban­ön­um. Þetta hljóm­ar eig­in­lega of ein­falt en heim­ild­ar­menn okk­ar staðhæfa að þetta sé merki­lega gott og ef það er rétt þá skilj­um við ekki af hverju þetta er ekki gert á hverju heim­ili um hverja helgi.

Snilld­in við pönnu­kök­urn­ar er að þær eru sér­lega fjöl­hæf­ar. Þær hæfa vel í holl­ustupartýið og þær sóma sér líka vel á veislu­borðinu í barna­af­mæl­inu auk þess sem við leiðum lík­ur að því að þær bragðist sér­lega vel með súkkulaðibit­um.

En upp­skrift­in er hér og við skor­um á ykk­ur að prófa.

Einföldustu pönnukökur í heimi

Vista Prenta

Ein­föld­ustu pönnu­kök­ur í heimi

Dug­ar í fjór­ar pönnu­kök­ur

  • 1 egg
  • 1 ban­ani

Aðferð:

  1. Maukið sam­an ban­ana og egg.
  2. Steikið á pönnu.
  3. Skellið upp úr yfir hvað þetta var auðvelt!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert