Grilluð pizza með fíkjum, gráðosti og sultuðum lauk

Ljósmynd: Feasting at Home

Grillaðar pizz­ur eru stór­kost­leg upp­finn­ing. Brauðið verður sér­lega stökkt og gott auk þess sem grill­keim­ur­inn smýg­ur í gegn sem ger­ir bragðið al­gjör­lega truflað. 

Það er því ekki að ástæðulausu sem við birt­um þessa upp­skrift enda fara hér sam­an nokkr­ar stór­s­leggj­ur í mat­ar­gerð. Fíkj­ur og gráðost þarf vart að kynna og sultaður lauk­ur­inn stend­ur alltaf fyr­ir sínu. Þetta er því eins skot­helt og hugs­ast get­ur og við segj­um því bara: Verði ykk­ur að góðu!

Grilluð pizza með fíkjum, gráðosti og sultuðum lauk

Vista Prenta

Grilluð pizza með fíkj­um, gráðosti og sultuðum lauk

  • 1 rauðlauk­ur, skor­inn í þunna hringi
  • 2 msk. ólífu­olía
  • ögn af salti
  • 2 msk. bal­sa­mik edik
  • ögn af pip­ar
  • 1 tsk. syk­ur eða hun­ang
  • 450 gr. pizzu­deig, skipt í tvo eða fjóra hluta
  • 1 hvít­lauks­geiri, maukaður
  • 1 bolli rif­inn mozzar­ella
  • 1 bolli mul­inn gráðost­ur 
  • 8 fíkj­ur, skorn­ar í fern­inga
  • hand­fylli af kletta­sal­ati

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 220 gráður eða setjið grillið á (eða kveikið upp í kol­un­um).
  2. Látið deigið hvíla á hveiti­löguðu yf­ir­borði í 20 mín­út­ur. 
  3. Í stórri pönnu skal steikja lauk­inn í ol­í­unni á meðal­há­um hita í 3 mín­út­ur. Hrærið stöðugt í. Lækkið hit­ann og saltið. Haldið áfram að steikja lauk­inn í 10 mín­út­ur eða svo eða þar til lauk­ur­inn fer að „kara­mell­ast“ og mýkj­ast. Bætið þá við bal­sa­mik-ed­iki, sykri og pip­ar. Eldið í 3-4 mín­út­ur til viðbót­ar uns vökvinn hef­ur soðið tölu­vert niður. Setjið til hliðar.
  4. Skiptið deig­inu upp í 2-4 hluta og fletjið út.
  5. Ef þið ætlið að grilla deigið skulið þið setja það beint á heita grind­ina og grilla í 2-3 mín­út­ur eða þar til kom­in eru fal­leg grill­för. Snúið þá við og grillið á hinni hliðinni. Ef baka á pizzuna mæl­um við með að þið for­bakið deigið fyrst og setjið síðan áleggið ofan á.
  6. Nuddið maukaða hvít­laukn­um á pizzu­botn­ana. Skiptið ost­in­um í til­hlýðileg­an fjölda og setjið á pizzurn­ar, setjið fíkj­urn­ar og lauk­inn ofan á og setjið aft­ur á grillið eða í ofn­inn til að klára eld­un­ina.  
  7. Þegar pizzurn­ar eru til­bún­ar skal bera þær fram en skellið fyrst smá kletta­sal­ati yfir þær. 

Heim­ild: Feasting at Home

Ljós­mynd: Feasting at Home
Ljós­mynd: Feasting at Home
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert