Fullkomið mánudags-taco

Ljósmynd: Ljúfmeti og lekkerheit

Eft­ir sæm­lega vel heppnaða helgi veðurfars­lega séð er ekki úr vegi að búa til góm­sætt taco í kvöld­mat­inn. Það er frek­ar sniðugt verður að segj­ast eins og er og kem­ur beint úr smiðju Berg­lind­ar á Ljúf­meti og lekk­er­heit­um. 

Upp­skrift­in býður upp á skemmti­leg­ar út­færsl­ur en auðveld­lega má skipta út hrá­efn­um eða bæta við ein­hverju sem er í sér­legu upp­á­haldi. 

Fullkomið mánudags-taco

Vista Prenta

Tortillakaka

(upp­skrift fyr­ir 4-6)

  • 1 pakkn­ing með 8 tortill­um (medi­um-stærð)
  • 500 g nauta­hakk
  • 1 poki taco-krydd
  • 100 g rjóma­ost­ur (mér finnst gott að nota phila­delp­hia-rjóma­ost­inn)
  • 1 dl rjómi
  • 150 g maís­baun­ir
  • 1/​2 krukka chun­ky salsa
  • salt og pip­ar
  • um 300 g rif­inn ost­ur

Aðferð:

  1. Steikið nauta­hakkið og kryddið með taco-krydd­inu. Hrærið rjóma­osti, rjóma, salsa og maís­baun­um sam­an við og smakkið til með salti og pip­ar.
  2. Smyrjið smellu­form (hægt að sleppa því og raða tortilla­kök­un­um beint á ofn­plötu) og setjið tvær tortilla­kök­ur í botn­inn á form­inu. Setjið 1/​3 af fyll­ing­unni yfir og smá rif­inn ost. Setjið tvær tortill­ur yfir og end­ur­takið (þannig að það verði 3 lög af fyll­ingu). Endið með tortilla­köku efst og stráið rest­inni af ost­in­um yfir. Setjið í 200° heit­an ofn í 20-25 mín­út­ur.
Ljós­mynd: Ljúf­meti og lekk­er­heit
Ljós­mynd: Ljúf­meti og lekk­er­heit
Ljós­mynd: Ljúf­meti og lekk­er­heit
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert