Rifin sem Ramsay elskar

mbl.is/Tilly's Kitchen Takeover

Rif eru ekki bara rif (eins og all­ir vita) og ef sjálf­ur Gor­don Ramsay mæl­ir með þeim þá hljóta þau að vera stór­kost­leg. Það er hið minnsta niðurstaðan sem við höf­um kom­ist að hér á Mat­ar­vefn­um en þessi upp­skrift hljóm­ar alla vega frek­ar vel.

Upp­skrift­in kem­ur úr smiðju Til­ly Ramsay, sem jafn­framt er dótt­ir Ramsay og gaf á dög­un­um út sína fyrstu mat­reiðslu­bók, Til­ly´s Kitchen Takeo­ver.

Sjá frétt mbl.is:

Faðir henn­ar er skilj­an­lega mjög stolt­ur af dótt­ur sinni sem er sögð blóta um­tals­vert minna en faðir henn­ar og vera sér­lega ljúf. Deildi hann upp­skrift­inni að rifj­un­um með fylgj­end­um sín­um á In­sta­gram og get­um við ekki annað en gert hið sama og von­um að þið njótið vel.

Rifin sem Ramsay elskar

Vista Prenta
Rif­in sem Ramsay elsk­ar
  • 1 lauk­ur
  • 2 hvít­lauks­geir­ar
  • 2 msk. ólífu­olía
  • 1/​2 tsk. chili-flög­ur (val­frjálst)
  • 1 tsk. fenn­el­fræ
  • 110 g dökk­ur púður­syk­ur
  • 600 g tóm­atsósa
  • 110 ml soyasósa
  • 1 kg svínarif
  • salt og pip­ar

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 150˚C
  2. Meðan ofn­inn er að hitna skuluð þið taka utan af og saxa lauk­inn frem­ur gróft. Síðan afhýða hvít­lauk­inn og mauka vel.
  3. Setjið pönnu á hell­una og hitið upp í miðlungs­hita þar til hún er orðin vel heit. Bætið þá við ólífu­olí­unni, laukn­um og hvít­laukn­um. Steikið í 4-5 mín­út­ur eða þar til lauk­ur­inn er orðinn mjúk­ur.
  4. Bætið chili­f­lög­un­um sam­an við (ef þið eruð að nota þær), fenn­el­fræj­un­um og púður­sykr­in­um og steikið. Hrærið reglu­lega í þar til syk­ur­inn hef­ur bráðnað eða í 1-2 mín­út­ur.
  5. Bætið tóm­at- og soyasós­un­um sam­an við og hrærið vel sam­an. Látið suðuna koma upp og lækkið þá und­ir og látið sós­una þykkna á hell­unni í tíu mín­út­ur eða svo.
  6. Setjið rif­in í djúpt form og hellið sós­unni yfir.
  7. Setjið álp­app­ír yfir formið og setjið í ofn­inn í 2 tíma. Hækkið þá hit­ann upp í 180˚C, takið álp­app­ír­inn af og eldið í 30-45 mín­út­ur til viðbót­ar.
  8. Þegar rif­in eru fullelduð skal taka formið úr ofn­in­um og láta rif­in kólna ögn áður en þið berið þau fram.
  9. Berið fram með nóg af serví­ett­um þar sem all­ir fing­ur verða vel klístraðir.
mbl.is/​Til­ly's Kitchen Takeo­ver
Hjér má sjá forsíðu bókarinnar.
Hjér má sjá forsíðu bók­ar­inn­ar. mbl.is/​Til­ly´s Kitchen Takeo­ver
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert