Kanilsnúðar með karmellu og pekanhnetum
Gerði þessa dásamlegu kanilsnúða sem slógu heldur betur í gegn. Kanilsnúðauppskriftin sjálf er rosalega mjúk og góð en ég hef gert hana nokkrum sinnum með glassúri. Ég prófaði núna að setja karmellusósu og pekanhnetur og það slær glassúrinu við.Uppskrift fyrir 8-10 manns
- 1 pakki þurrger (sá sem ég notaði var 11 gr.)
- 3/4 bolli mjólk
- 1/4 bolli sykur
- 1/4 bolli volgt vatn
- 1 tsk. vanilludropar
- 1 egg
- 1 tsk. salt
- 1/4 bolli brætt smjör
- 3 og hálfur bolli hveiti
- 1/4 bolli bráðið smjör til að pensla í lokin
Kanilfylling:
- 100 gr. lint smör
- 1 bolli sykur
- 2 msk. kanill
Karamellusósa:
- 1 bolli púðursykur
- 4 msk. smjör
- 1 tsk. vanilludropar
- 1/2 tsk. salt
- 1 msk. mjólk
- 80 gr. pekanhnetur
Ofninn hitaður í 180 gráður, þegar deigið er tilbúið
Aðferð:
- Volgt vatnið og þurrger er sett í glas og látið bíða í nokkrar mínútur.
- Egg, mjólk, bráðið smjör, salt og sykur er sett í hrærivélina og hrært þar til það hefur blandast vel saman (best að nota krókinn, hnoðarann á hrærivélinni).
- Næst fer þurrgersblandan og hveitið út í og hnoðað vel.
- Takið deigið úr hrærivélinni, gerið úr því kúlu, penslið með olíu og setið í skál með plastfilmu yfir og látið það standa í um eina og hálfa klukkustund eða þar til það hefur nánast tvöfaldast.
- Þegar deigið er tilbúið er smjörpappír lagður á borðið og hveiti dreift yfir. Deigið er sett ofan á og það flatt út í ferhyrning.
- Kanilblandan er nú sett ofan á og dreift vel úr henni og svo er deginu rúllað upp og skorið í jafna bita.
- Í eldfast form fer smjörpappír og kanilsnúðunum raðað í formið og þeir penslaðir með bræddu smjöri.
- Inn í ofn í 25 mínútur eða þar til það er kominn brúnleitur gljái á þá.
- Á meðan snúðarnir eru inni í ofni er byrjað á karmellunni. Öll hráefnin nema pekanhneturnar eru sett í pott og látið sjóða við vægan hita í um 5 mínútur, það þarf að hræra vel svo karmellan brenni ekki. Pekanhneturnar eru skornar í bita og þeim bætt út í og potturinn tekinn af hellunni.
- Þegar snúðarnir eru komnir út er karmellan sett yfir og þeir tilbúnir.