Tengdamóðir mín Bergljót Stefánsdóttir kemur alltaf með ostabombu á veisluborðið þegar halda skal góða veislu eða partý. Bomban góða klárast alltaf og er sannkölluð klassík. Tengdó tvöfaldar hana yfirleitt enda breytast prúðustu gestir í úlfa þegar bomban mætir!
Uppskriftin er komin frá góðri konu í fjölskyldunni og hefur ferðast manna á milli við góðan orðstír.
250 g rjómaostur
2 bollar rifinn ostur
1 msk. graslaukur – má sleppa
1 msk. paprika rauð og/eða græn
1 msk. laukur
2 tsk. worchestershire-sósa
1 tsk. sítrónusafi
<br/>Saxaðir valhnetukjarnar
Öllu er hrært saman í hrærivél með hnoðara nema hnetunum.
<br/>Gerið því næst kúlu úr ostatryllingnum og þekið með söxuðum valhnetum.
<br/>Kælið í 2 klst. áður en borið er á borð.