Grillaðir humarhalar með hvítlaukssósu og piparosta-ostabrauði

Grillaðir humarhalar með bestu hvítlaukssósu allra tíma og piparosta-ostabrauði.
Grillaðir humarhalar með bestu hvítlaukssósu allra tíma og piparosta-ostabrauði. mbl.is/Ragnar Freyr

Mat­ar­blogg­ar­inn Ragn­ar Freyr Ingvars­son, bet­ur þekkt­ur sem Lækn­ir­inn í eld­hús­inu, kann svo sann­ar­lega að gera vel við sig eins og sést hér. Hann seg­ir þessa hvít­laukssósu vera hrein­an unað!

Hvítlaukurinn eftir bakstur.
Hvít­lauk­ur­inn eft­ir bakst­ur. mbl.is/​Ragn­ar Freyr

„Í þess­ari færslu er eig­in­lega sós­an sem leik­ur aðal­hlut­verkið. Og það er vegna þess að ég held bara að mér hafi tek­ist að gera bestu hvít­laukssósu sem ég hef bragðað. Og það er ekki eins og humar­inn og pip­arosta-hvít­lauks­brauðið hafi ekki verið ljúf­fengt – sós­an var barasta al­ger­lega dá­sam­lega ljúf­feng!

Og það tókst með því að ofn­baka hvít­lauk­inn í álp­app­ír. Þannig umbreyt­ist hann al­veg – og það heita og sterka bragð sem oft ein­kenn­ir hvít­lauk mild­ast en í staðinn koma sæt­ir tón­arn­ir og ljúfu jafn­vægi náð,“ seg­ir Ragn­ar í nýrri færslu á blogg­inu sínu.

Grillaðir humarhalar með hvítlaukssósu og piparosta-ostabrauði

Vista Prenta

Grillaðir humar­hal­ar með bestu hvít­laukssósu allra tíma og pip­arosta-osta­brauði

Hrá­efna­listi – fyr­ir fjóra

Fyr­ir sós­una

1 hvít­lauk­ur
2 msk. jóm­frúarol­ía
salt og pip­ar
1 dós sýrður rjómi
2 msk. grísk jóg­úrt
2 msk. mæj­ónes
1 tsk. hlyns­íróp
3 msk. graslauk­ur
salt og pip­ar

Fyr­ir humar­inn

Hum­ar
hvít­lauk­sol­ía
salt og pip­ar

Fyr­ir pip­arost­sosta-hvít­lauks­brauð

1 bagu­etta
hvít­lauk­sol­ía
1 pip­arost­ur
rif­inn ost­ur eft­ir smekk
salt og pip­ar

Byrj­um á byrj­un­inni; hvít­laukssós­an guðdóm­lega.

Byrjið á því að setja heil­an hvít­lauk á álp­app­ír, hella ol­í­unni yfir og salta. Inn­siglið og bakið í 180 gráðu heit­um ofni í 50 mín­út­ur. Leyfið laukn­um að kólna aðeins áður en þið farið að meðhöndla hann þar sem hann er ákaf­lega heit­ur.

Á meðan hvít­lauk­ur­inn er að kólna setjið þið heila dós af sýrðum rjóma í skál.

Hrærið sýrða rjómann sam­an við tvær mat­skeiðar af grískri jóg­úrt og svo sama magni af mæj­ónesi og hrærið vel sam­an. 

Hakkið graslauk­inn og blandið hon­um sam­an ásamt öll­um hvít­laukn­um – sem auðvelt er að kreista úr hýði sínu.

Klippið humar­inn upp eft­ir bak­inu og hreinsið görn­ina frá og leggið humar­hal­ann ofan á skel­ina. Penslið humar­inn ríku­lega með hvít­lauk­sol­íu, salti og pip­ar. Grillið í fimm til sex mín­út­ur á blúss­heitu grilli eða inni í ofni. 

Skerið bagu­ett­una í tvennt, penslið með hvít­lauk­sol­íu, sneiðið pip­arost­inn þunnt og leggið á brauðið. Setjið því næst rif­inn ost ofan á og grillið í ofn­in­um í nokkr­ar mín­út­ur þangað til ost­ur­inn er bráðinn. Svo er bara að leggja þessa dá­semd á disk og njóta – grillaður hum­ar, dá­sam­legt pip­arosta-osta­brauð og nóg af þess­ari dá­sam­legu hvít­laukssósu.

mbl.is/​Ragn­ar Freyr
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert