Mánudagsfiskur og hollráð Guðbjargar

Guðbjörg Finnsdóttir er ákaflega vinsæll líkamsræktarkennari og á og rekur …
Guðbjörg Finnsdóttir er ákaflega vinsæll líkamsræktarkennari og á og rekur G-Fit í Garðarbæ. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Guðbjörg Finns­dótt­ir, eig­andi G-Fit, er les­end­um Mat­ar­vefjar­ins kunn­ug en upp­skrift­ir frá henni eru með þeim vin­sælli sem við birt­um enda er Guðbjörg ákaf­lega góður kokk­ur og vill eng­ar öfg­ar eða vit­leysu. Smelltu hér til að sjá upp­skrift að morg­un­mat Guðbjarg­ar.

Nú þegar marg­ir eru að reyna að koma sér í holl­ara lífs­mynst­ur eft­ir sukk­sum­ar er gott að hlera of­urkropp eins og Guðbjörgu um hvað skuli hafa í huga.

„Hugsaðu  vel um H-in þrjú: Hreyf­ing - Hvíld - Hollt mataræði.  Þetta þrennt þarf að hald­ast í hend­ur til að ná góðri út­komu. Eft­ir sum­ar­frí þá þyrst­ir okk­ur að kom­ast í form og nýttu þér kraft­inn sem þú hef­ur. Hug­leiddu hvað þér líður vel þegar þú ert að æfa, hugsaðu hvað þjálf­un­in ger­ir þér gott og hvað þú finn­ur mik­inn mun á lík­ama og sál. Þú veist hvað þú ert orku­meiri, sterk­ari, sef­ur bet­ur og ert meira lif­andi við allt sem þú ert að gera. Settu raun­hæf mark­mið niður á blað. Hafðu þau sýni­leg fyr­ir þér og þínum og minntu þig á hvað þú ætl­ar þér. 

Þegar koll­inn er orðinn klár þá er auðveld­ara að stand­ast freist­ing­ar sem sum­ar­fríið leyfði þér. Hafðu þetta ein­falt, forðastu syk­ur, reyndu að borða sem mest hreina fæðu, hugaðu um skammta­stærð og njóttu þess að borða fal­leg­an og holl­an mat.“

Ótrúlegt en satt þá fagnaði Guðbjörg fimmtugsafmæli sínu í sumar.
Ótrú­legt en satt þá fagnaði Guðbjörg fimm­tugsaf­mæli sínu í sum­ar. mbl.is/​Face­book

Mánudagsfiskur og hollráð Guðbjargar

Vista Prenta

Þork­hnakk­ar með ís­lensku græn­meti

1 kg þorsk­hnakk­ar
1 dl góð ólífu­olía
1 rauður chilli fersk­ur
3 hvít­lauksrif
Best á fisk­inn krydd
Krydd­blanda frá lækn­in­um í eld­hús­inu (ofn­bakaður fisk­ur)
Heilsu­tóm­at­ar
1 rauð paprika
Brok­kolí
Salt og pip­ar

Chilli og hvít­lauksrif saxað vel sam­an og blandað við ol­í­una. Krydda fisk­inn og gott að setja fisk­inn í poka og leyfa að liggja í krydd­leg­in­um í klst. Fisk­ur í eld­fast mót, græn­meti yfir, dass af olíu og salt og pip­ar. Inn í 190° heit­an ofn með lok yfir í ca. 10 mín. og síðan lokið af og halda áfram í 15 mín.

Borið fram með banka­byggi, grænu sal­ati og graslaukssósu

Graslaukssósa með gúrku 

1 dós grísk jóg­úrt
1/​2 gúrka söxuð smátt
Hand­fylli af graslauk saxað smátt
Salt
Pip­ar
Cayenne-pip­ar

Öllu hrært sam­an.

Það er tilvalið að nýta sem mest af fersku grænmeti …
Það er til­valið að nýta sem mest af fersku græn­meti sem flest­ar versl­an­ir iða nú af. mbl.is/​Hanna Andrés­dótt­ir
Hollt og fljótlegt.
Hollt og fljót­legt. mbl.is/​Hanna Andrés­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert