Oreo-ostakaka með nýrri íslenskri vanillumjólk

Girnilegar ostakökur en skemmtilegt er að bera þær fram í …
Girnilegar ostakökur en skemmtilegt er að bera þær fram í glasi eins og hér sést. mbl.is/MS

All­ir þeir sem hafa hár­reytt sig yfir því að eiga ekki vanillu­bragðefni eða annað því um líkt þegar skella skal í þeyt­ing geta nú tekið gleði sína því á næstu dög­um er vænt­an­leg í versl­an­ir Vanillu­blanda sem er bragðbætt nýmjólk.

Bland­an er með sæt­um vanillu­keim og mun koma sér ansi vel á mörg­um heim­il­um.

Hér erum við með upp­skrift þar sem not­ast er við Vanillu­blönd­una en það er mat­ar­blogg­ar­inn Gígja S. Guðjóns­dótt­ir sem á heiður­inn af henni.

Oreo-ostakaka með nýrri íslenskri vanillumjólk

Vista Prenta
<span><span><span><b>Vanillu­ostakaka með oreo-kexi</​b></​span></​span></​span> <em> </​em> <em>Upp­skrift fyr­ir 4-6</​em>
  • 300 g rjóma­ost­ur
  • 1 pakki Royal-búðing­ur með vanillu
  • 400 ml Vanillu­blanda
  • 12 Oreo-kex­kök­ur
  • Jarðarber og rjómi fyr­ir topp­inn
<span><span><span>Aðferð:</​span></​span></​span>
  1. Rjóma­ost­in­um og Vanillu­blönd­unni er hrært sam­an í hræri­vél. Næst fer búðings­duftið út í og hrært vel þar til all­ir kekk­ir eru farn­ir og bland­an er orðin silkimjúk.
  2. Oreo-kex er mulið og kexið og osta­köku­bland­an sett til skipt­is í skál eða glas.
    K
    ökuna þarf að setja inn í ísskáp og kæla í minnst 30 mínútur áður en hún er bor­in fram.
  3. Desert­inn er síðan hægt að skreyta að vild og t.d. er gott að nota þeytt­an rjóma, jarðarber og mulið Oreo-kex.
Loksins er hægt að kaupa mjólk með vanillubragði en margir …
Loks­ins er hægt að kaupa mjólk með vanillu­bragði en marg­ir hafa beðið spennt­ir eft­ir því. mbl.is/​MS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert