Magnþrungin ostakaka með karamellusósu

Kakan er einstaklega girnileg eins og sjá má.
Kakan er einstaklega girnileg eins og sjá má. Kristinn Magnússon
Best er að baka kök­una dag­inn áður, seg­ir mat­ar­blogg­ar­inn Hanna Þóra á hanna.is en fal­leg­ast er þegar kara­mellusós­an er sett á rétt áður en hún er bor­in fram. Guðrún í Seimei held­ur mikið upp á þessa ljúf­fengu osta­köku sem slær alltaf í gegn.

Magnþrungin ostakaka með karamellusósu

Vista Prenta
Ostakaka með kara­mellusósu
Botn
  • 2 pakk­ar dökkt Oreo-kex
  • (taka kremið af og geyma)
  • 80 g smjör – brætt
Fyll­ing
  • 400 g rjóma­ost­ur (Phila­delp­hia) – við stofu­hita
  • 2 dl sýrður rjómi – við stofu­hita
  • 4 egg – við stofu­hita
  • ½ tsk. salt
  • 2 tsk. vanillu­syk­ur
  • Kremið úr kex­inu
  • 1 dl syk­ur

Til að toppa með:

Botn

  1. Kremið skafið af kex­inu og sett til hliðar.Kexið er mulið í mat­vinnslu­vél eða í mortéli.
  2. Smjör brætt og blandað sam­an við muln­ing­inn. Bök­un­ar­papp­ír sett­ur í botn­inn á 22-23 cm bök­un­ar­formi og muln­ingn­um dreift jafnt á botn og hliðarn­ar. Best að nota fing­urna til að þjappa muln­ingn­um vel sam­an. Geymt í kæli á meðan fyll­ing­in er út­bú­in.

Fyll­ing

  1. Ofn­inn hitaður í 160°C (yfir- og und­ir­hiti). Rjóma­ost­ur, kremið úr kex­inu, syk­ur og sýrður rjómi – hrært sam­an. Eggj­um bætt við einu í einu og því næst vanillu­sykri. Allt hrært sam­an þar til bland­an verður slétt og fín. Sett í böku­formið yfir kexmuln­ing­inn.
  2. Bakað í ofni í rúma klukku­stund (u.þ.b. 65-70 mín­út­ur) – gott að láta kök­una kólna á grind og síðan er hún sett inn í kæli í nokkr­ar klukku­stund­ir eða yfir nótt. Stund­um mynd­ast sprunga í kök­una en hana má fela með hnetumuln­ingi og kara­mellusós­unni.

Frá­bær kara­mellusósa

  • 2½ dl syk­ur
  • 1 dl vatn
  • 1½ dl rjómi eða mat­reiðslur­jómi
  • ½ tsk. salt
  • 1 tsk. vanillu­es­sens
  • Smjörklípa

Aðferð: 

  1. Blanda sam­an rjóma, salti og vanillu­es­sens í skál/​könnu. Syk­ur og vatn sett í pott – hrært sam­an. Hitað upp og haft á meðal­hita – passa að láta ekki sjóða um of. Mik­il­vægt að hræra ekki í á meðan soðið er – tek­ur u.þ.b. 15-20 mín­út­ur eða þangað til lit­ur­inn er orðinn gull­in­brúnn.
  2. Ekki hef­ur gefið góða raun að stoppa suðuna og halda áfram síðar. Best að fylgj­ast vel með suðunni. Þegar syk­ur­bland­an er orðin gull­in­brún er pott­ur­inn tek­inn af hell­unni og rjóma­blönd­unni hellt í – þá get­ur mynd­ast mik­il suða – hræra ró­lega þar til bland­an verður slétt. Má hafa á mjög lág­um hita.
  3. Smjörklípa sett í kara­mellu­blönd­una í lok­in og blandað sam­an við.
  4. Ath.: Ekki hræra í sós­unni á meðan syk­ur­inn er að dökkna – mik­il­vægt að fylgj­ast vel með þegar hann byrj­ar að dökkna – það ger­ist hratt og syk­ur­bland­an má ekki verða of dökk.
  5. Kara­mella – hana má búa til dag­inn áður eða nokkr­um dög­um áður og geyma í krukku í kæli. Áður en hún er sett yfir kök­una er betra að velgja hana aðeins en samt ekki of mikið. Ef notuð er upp­skrift­in frá­bær kara­mellusósa næg­ir að nota hálfa upp­skrift­ina.
  6. Hnet­um stráð yfir hugs­an­leg­ar sprung­ur sem hafa mynd­ast í kök­unni. Kara­mellusósu hellt yfir og skreytt með jarðhnet­um. Þegar kak­an er geymd í kæli þarf ekki setja plast yfir hana.
  7. Kak­an geym­ist vel í nokkra daga í kæli.
Hver gæti fúlsað við þessu góðgæti?
Hver gæti fúlsað við þessu góðgæti? Krist­inn Magnús­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert