Bláberjamímósa sem bætir lífið

Fagur og virkilega góður. Svo eru bláber svo holl...
Fagur og virkilega góður. Svo eru bláber svo holl... mbl.is/Kristinn Magnússon

Tvær bugaðar mæður hitt­ust í dög­urði (fá­rán­legt orð) til að ræða erfitt hegðun­ar­mynst­ur barna sinna. Það verður að viður­kenn­ast að þær voru með ein­beitt­an brota­vilja og pöntuðu sér mímós­ur áður en þær heilsuðu hvor ann­arri. Sum­ir dag­ar eru þannig. 

Mímós­urn­ar voru væg­ast sagt stór­kost­leg­ar svo skyndi­lega voru hegðun­ar­vanda­mál­in bara áhuga­verð verk­efni. Hin klass­íska mímósa er gerð úr freyðivíni og app­el­sínusafa en í seinni tíð hef­ur rauðróf­umímósa og epla- og engi­fermímósa notið mik­illa vin­sælda. Það er þó óum­deil­an­legt að af öll­um þeim mímós­um sem við vin­kon­urn­ar höf­um smakkað var þessi lang­best og al­veg hreint guðdóm­leg. Upp­skrift­in er frá Hverf­is­götu 12 og ekki skemma skemmti­lega gam­aldags kampa­víns­glös­in fyr­ir. 

Bláberjamímósa sem bætir lífið

Vista Prenta

Blá­berja­mímósa Hverf­is­götu 12 

1/​2 cl (5 ml) góð heima­gerð blá­berja­sulta 
1/​2 cl (5 ml) sítr­ónusafi 
1/​2 cl (5 ml) blá­berjalí­kjör 
Freyðivín eða kampa­vín 

Öllu hrært sam­an nema vín­inu og hellt í kampa­víns­glas. Fyllt upp með freyðivíni eða kampa­víni. Var­ist að velja of sætt freyðivín. 

Dökkfjólublátt og dásamlegt sunnudagsgúmmelaði.
Dökk­fjólu­blátt og dá­sam­legt sunnu­dags­gúm­melaði. mbl.is/​TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert