Kokteilinn sem gerir eftirrétti óþarfa

Sturlað gott!
Sturlað gott! mbl.is/TM

Bai­ley's er ákaf­lega vin­sæll lí­kjör og í raun sá mest seldi hér­lend­is. Lí­kjör­inn er þó nokkuð sæt­ur en hér er kom­in hin full­komna leið til að fá aðeins meira "kikk" í drykk­inn. Ég drekk aldrei viskí en átti flösku inni í skáp sem ég vildi koma í not. Útkom­an var al­gjör sæla! 

Til að toppa snilld­ina bræddi ég dökkt súkkulaði og teiknaði mynstur með því á bök­un­ar­papp­ír og dreifði sjáv­ar­salti yfir. Súkkulaðinu var svo skellt í kæli og notað til að skreyta kokteil­inn þegar gesti bar að garði.

Ein­fald­ur viskí (Ég notaði Mon­key Shoulder)
Þre­fald­ur Bai­ley's
Sjáv­ar­salt 
Dökkt súkkulaði 
Klaki 

Hellið Bai­ley's, viskí og klaka í kokteil­hrist­ara og hristið sam­an.
Berið fram með ein­um klaka og súkkulaðitopp.

Hver þarf eftirrétt þegar þetta er til?
Hver þarf eft­ir­rétt þegar þetta er til? mbl.is/​TM
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert