Vinsælasta uppskrift Sigrúnar

Bananabrauð er ákaflega notalegt að eiga í kaffitímanum, það má …
Bananabrauð er ákaflega notalegt að eiga í kaffitímanum, það má einnig frysta og hentar svo vel í nesti. mbl.is/Cafesigrun.is

Vefsíðan ca­fesigrún.is er ein fyrsta mat­ar­bloggsíðan hér­lend­is sem legg­ur áherslu á holl­ari mat og eft­ir­rétti. Sigrún Þor­steins­dótt­ir, höf­und­ur upp­skrift­anna, er klín­ísk­ur barna­sál­fræðing­ur með MSc í heilsusál­fræði. Hún er móðir tveggja ungra barna og hef­ur kapp­kostað að gefa þeim sem holl­asta fæðu og er snill­ing­ur í að finna leiðir til að gera hefðbundn­ar upp­skrift­ir holl­ari. 

Mat­ar­vef­ur­inn heyrði í Sigrúnu en okk­ur lék for­vitni á að vita hvaða upp­skrift­ir væru þær mest lesnu frá upp­hafi á vef henn­ar. Þær vin­sæl­ustu reynd­ust vera kó­kos­kúl­ur með ekta súkkulaði og þetta dá­sam­legt ban­ana­brauð en hvort tveggja hent­ar svo einkar vel í skamm­deg­inu. 

Vinsælasta uppskrift Sigrúnar

Vista Prenta
Ban­ana­brauð Sigrún­ar

„Þetta er af­skap­lega ein­föld og fljót­leg upp­skrift að ban­ana­brauði. Mik­il­vægt er að nota vel þroskaða ban­ana, helst þannig að þeir séu orðnir svart­ir og það er ekk­ert sem betra er að nota svo­leiðis ban­ana í, held­ur en svona brauð. Ég man ekki al­veg hvaðan þessi upp­skrift er, hún gæti verið blanda úr mörg­um. Ég man bara að það áttu að vera 100 g af smjöri en ég skipti því nú út strax fyr­ir 1 aukaban­ana og 1 msk. af kó­kosol­íu. Það er svaðal­ega gott að setja svo­lítið af söxuðum val­hnet­um út í deigið og eyk­ur það mikið á holl­ust­una enda inni­halda val­hnet­ur holla fitu.“

At­hugið að þið þurfið brauðform sem tek­ur a.m.k. 1 kg fyr­ir þessa upp­skrift.

Inni­hald

  • 70 g rapadura-hrá­syk­ur (eða ann­ar hrá­syk­ur)
  • 10 drop­ar stevia (eða 20 g hrá­syk­ur til viðbót­ar)
  • 4 ban­an­ar, mikið þroskaðir 
  • 2 egg
  • 2 msk. kó­kosol­ía
  • 200 g spelti
  • 2 tsk. vín­steins­lyfti­duft
  • 1 tsk. salt (Himalaya eða sjáv­ar­salt)
  • 25 g haframjöl
  • 25 g haframjöl til að strá yfir

Aðferð

  1. Þeytið egg­in laus­lega og bætið hrá­sykr­in­um sam­an við í smá­um skömmt­um (nokkr­ar mat­skeiðar í einu eða svo).
  2. Merjið ban­an­ana með gaffli og hrærið sam­an við egg­in ásamt kó­kosol­í­unni og stevia-drop­un­um.
  3. Sigtið sam­an í stóra skál; spelti, lyfti­dufti og salt og hrærið vel. Bætið 25 g af haframjöli út í.
  4. Hellið ban­ana­blönd­unni út í stóru skál­ina og hrærið mjög var­lega (rétt veltið deig­inu til þangað til það bland­ast sam­an). Deigið á að vera það blautt að það leki af sleif í stór­um kekkj­um og ekki t.d. það þurrt að hægt sé að hnoða það.
  5. Klæðið brauðform með bök­un­ar­papp­ír og hellið deig­inu í formið. Gætið þess að það fari vel í öll horn.
  6. Dreifið af­gang­in­um af haframjöl­inu yfir ban­ana­brauðið.
  7. Bakið í 180°C í 40-45 mín­út­ur.
  8. Brauðið verður mjög klessu­legt þegar það er ný­komið úr ofn­in­um. Látið brauðið kólna í a.m.k. 30 mín­út­ur áður en þið skerið það í sneiðar.

Gott að hafa í huga

  • Það er mjög gott að setja um 2 tsk. af kanil í upp­skrift­ina, sér­stak­lega fyr­ir jól­in!
  • Gott er að bæta við söxuðum hnet­um í upp­skrift­ina (t.d. pecan­hnet­um eða val­hnet­um).
  • Það er mjög gott að frysta ban­ana­brauðið og hita upp síðar. Það er líka sniðugt að skera brauðið í sneiðar og pakka inn þannig. Þannig get­ur maður hitað eina sneið í einu og tekið með sér í nestið!
  • Ef kó­kosolí­an er hörð má stinga krukk­unni í heitt vatn í nokkr­ar mín­út­ur þar til hún verður fljót­andi.
  • Í staðinn fyr­ir 5 ban­ana má nota 4 ban­ana + 125 ml líf­rænt fram­leidd­an barna­mat.
  • Ef af­gang­ur er af barna­matn­um má frysta hann í ís­mola­box og nota í drykk síðar (smoot­hie).
  • Notið ham­ingju­egg ef þið mögu­lega getið.
Sigrún Þorsteinsdóttir segir að börnin læri það sem fyrir þeim …
Sigrún Þor­steins­dótt­ir seg­ir að börn­in læri það sem fyr­ir þeim er haft og legg­ur því áherslu á hollt mataræði. mbl.is/Ó​feig­ur Lýðsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert