Jóladálæti kokkanna

Grinilegur laxabröns fyrir aðfangadag.
Grinilegur laxabröns fyrir aðfangadag. mbl.is/Gunnar Ingi Gíslason
„Við erum mjög hefðbund­in í jóla­matn­um en leik­um okk­ur gjarn­an með for­rétt­inn, erum t.d. með rjúpu í for­rétt, en ham­borg­ar­hrygg í aðal­rétt,“ seg­ir Sig­urður Gísla­son, kokk­ur á GOTT í Vest­manna­eyj­um.
„Það hef­ur mynd­ast sú hefð að vera með bröns á aðfanga­dag og vera með alls kyns kæf­ur og þetta flat­brauð með laxi sem ég gef ykk­ur upp­skrift að. Þá er fjöl­skyld­an að líta inn, en þetta er ekk­ert form­legt mat­ar­boð. Krakk­arn­ir hlakk­ar eig­in­lega mest til þessa há­deg­is­boðs, þau spyrja alltaf hvort það verði ekki ör­ugg­lega bröns,“ seg­ir Siggi.
„Aðal­málið við lax­a­rétt­inn er að vera með hágæðalax. Við höf­um verið að reykja hann sjálf. Þetta er ein­fald­ur rétt­ur en frá­bær. Brauðdeigið er svipað og tortillu­deig,“ seg­ir Siggi og bend­ir á að djúp­steikta kapersið geri rétt­inn enn betri.
„Þetta er létt í maga og ger­ir mann óhemju­spennt­an fyr­ir veisl­unni sem verður svo um kvöldið.“
Fleiri mat­reiðslu­menn deila sín­um eft­ir­læt­is­upp­skrift­um í Sunnu­dags­blaði Morg­un­blaðsins. 
Sigurður Gíslason matreiðslumaður.
Sig­urður Gísla­son mat­reiðslumaður. mbl.is

Jóladálæti kokkanna

Vista Prenta
Laxa­bröns á aðfanga­dag
Reykt­ur lax með flat­brauði, djúp­steiktu kapers og jóg­úr­t­dress­ingu
Fyr­ir 4
Flat­brauð
  • 4 boll­ar spelt­hveiti, fínt malað
  • 1 te­skeið salt
  • 2 te­skeiðar lyfti­duft
  • 3 msk. ólífu­olía
  • 1 ½ bolli vatn
Blandið hveiti, salti og lyfti­dufti sam­an. Bætið ólífu­olíu sam­an við og notið hend­ur til að blanda því sem best sam­an. Blandið vatni sam­an við, litlu í einu, og hnoðið vel sam­an, annaðhvort í hönd­un­um eða KitchenAid-hnoðara.
Skiptið deig­inu í 18 hluta og hnoðið í litl­ar kúl­ur. Fletjið deig­kúl­urn­ar í ca. 5 mm þykkt. Steikið, helst á teflon­pönnu sem hef­ur verið olíu­bor­in, á meðal­hita og snúið reglu­lega þar til full­bakað.
  • 250 g reykt­ur lax
  • (skerið í eins þunn­ar sneiðar og þið getið)
  • piklaður lauk­ur
  • 1 rauðlauk­ur
  • 1 bolli hrá­syk­ur
  • 1 bolli sérríe­dik
  • 1 bolli vatn
Blandið sam­an ed­iki, hrá­sykri og vatni í pott og náið upp suðu. Kælið.
Afhýðið rauðlauk og skerið mjög þunnt og setjið út í volg­an ed­ikvökv­ann og látið liggja í ca. 1 til 2 tíma.
Jóg­úrtsósa
  • 1 dós hrein jóg­úrt
  • safi úr ½ sítr­ónu
  • 1 msk. hun­ang
  • 1 hvít­lauks­geiri, mar­inn og fínt saxaður
  • 2-3 msk. kapers (djúp­steikið við 180°C í ca. 2 mín.)
Raðið svo sam­an með því að setja kletta­sal­at ofan á volgt flat­brauðið, leggið reykta lax­inn ofan á sal­atið, setjið kapers yfir það og toppið með jóg­úrtsósu. Gott er að rífa börk af sítr­ónu eða app­el­sínu yfir og strá smá dilli yfir.
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert