Það er fátt meira viðeigandi en að bjóða upp á hreindýrabollakökur á aðventunni og það er akkúrat það sem hún Berglind Hreiðars á Gotterí og gersemar hefur gert.
Hún segir að hreindýragerðin sé á allra valdi en átta ára dóttir hennar hafi séð um skreytingarnar.
Þetta er myndarleg hjörð.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
Bollakökur
- Betty Crocker Devils Food Cake Mix
- Royal-súkkulaðibúðingur
- 170 ml matarolía
- 1 dós sýrður rjómi (180 gr.)
- 90 ml nýmjólk
- 4 egg
- 1 tsk. vanilludropar
- 250 gr. suðusúkkulaðidropar
Aðferð:
- Setjið allt nema súkkulaðidropana í skál, hrærið þar til slétt og fínt.
- Vefjið súkkulaðidropunum saman við með sleif.
- Skiptið á milli bollakökuformanna og bakið við 160°C í um 20 mínútur (blandan gefur 24 stk.).
Súkkulaðikrem
- 50 gr. suðusúkkulaði
- 100 gr. smjör (við stofuhita)
- 200 gr. flórsykur
- 1 tsk. vanilludropar
- 3 msk. bökunarkakó
- 2-4 msk. nýmjólk
Aðferð:
- Bræðið súkkulaðið í vatnsbaði og leyfið að standa á meðan þið þeytið rest saman svo það sé ekki of heitt þegar það er sett út í.
- Þeytið smjör þar til létt og ljóst.
- Bætið flórsykri og bökunarkakói smátt og smátt saman við og skafið niður á milli.
- Bætið vanilludropunum við að lokum og vefjið því næst bræddu súkkulaðinu saman við með sleif.
- Bætið nokkrum msk. af mjólk saman við eftir þörfum svo auðvelt sé að smyrja kreminu á.
Skraut
- Saltkringlur
- Litlar piparkökukúlur
- Wilton-nammiaugu (fást í Allt í köku)
- Rauðar & brúnar stórar sykurperlur (fást í Allt í köku)
- Límt saman með bræddu súkkulaði
Sum eru með rautt nef.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir