Tryllt kampavínssósa á for- eða eftirréttinn

Nýja sósukannan sem ég fékk í jólagjöf gleður svo sannarlega …
Nýja sósukannan sem ég fékk í jólagjöf gleður svo sannarlega augað ekki síður en sósan maga. mbl.is/TM

Þessi sósa er al­gjört dúnd­ur. Hún hent­ar vel á anda­sal­at í for­rétt og er full­kom­in með ís, osta­tertu eða mar­ens í eft­ir­rétt. Sós­an tek­ur stutta stund í gerð og geym­ist í nokkra daga í krukku inni í ís­skáp. 

Fersk sósa sem slær alltaf í gegn!

Tryllt kampa­vínssósa á for- eða eft­ir­rétt­inn

Vista Prenta

Bleik kampa­vínssósa

400 g fros­in hind­ber
40 g hrá­syk­ur
1 dl kampa­vín eða freyðivín. Ég notaði bleikt kampa­vín, Veu­ve Clicquot Rose, því það hef­ur nett­an jarðarberja­keim og pass­ar svo vel með berj­un­um en auðvitað má nota hvað sem er.

Setjið allt í pott og látið malla við lág­an hita í klst. Berið sama vín og er í sós­unni fram með eft­ir­rétt­in­um!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert