Krukkusalat eðalkroppsins

Anna Eiríks heldur úti skemmtilegri síðu með girnilegum uppskriftum og …
Anna Eiríks heldur úti skemmtilegri síðu með girnilegum uppskriftum og fróðleik. mbl.is/annaeiríks.is

Þjálf­ar­inn og gleðibom­b­an Anna Ei­ríks­dótt­ir opnaði ný­verið heimasíðuna anna­eiriks.is þar sem hún deil­ir fróðleik og upp­skrift­um til að aðstoða fólk við holl­ara og heil­næm­ara líferni. Anna fagnaði á dög­un­um 40 ára af­mæli sínu en gef­ur ekk­ert eft­ir í mataræðinu og æf­ing­un­um og hef­ur sjald­an eða aldrei litið bet­ur út. 

„Ég er mjög hrif­in af því að út­búa nesti og taka með mér í vinn­una því með því að skipu­leggja dag­inn fyr­ir fram er auðveld­ara að halda mataræðinu góðu. Mexí­kósal­at geri ég þegar ég er með taco eða burrito í kvöld­mat­inn og þá skelli ég í leiðinni í eina krukku sem ég gæði mér á dag­inn eft­ir,“ seg­ir Anna sem þekkt­ust er fyr­ir hin geysi­vin­sælu nám­skeið Eðalþjálf­un í Hreyf­ingu.

Krukkusalat eðalkroppsins

Vista Prenta

Mexí­kó­krukka Önnu Ei­ríks

Í þeirri röð sem ég raða í krukk­una
1/​2 dl salsasósa í botn­inn
1 dl hakk kryddað með burrito- eða taco-kryddi
1 dl grjón
Niður­skor­in gúrka
Niður­skor­in paprika
1/​2 lárpera skor­in
1 lúka spínat
Kirsu­berjatóm­at­ar (eða bara venju­leg­ur tóm­at­ur)

Aðferð:

Öllu hellt úr krukk­unni í góða skál og borðað með bestu lyst!

Hollt og gott. Fyrir sósuunnendur má vel bæta við 1 …
Hollt og gott. Fyr­ir sósu­unn­end­ur má vel bæta við 1 msk. af sýrðum rjóma sam­an við salsasós­una. mbl.is/​Anna­eiriks.is
Löng röð er í tímana hjá Önnu.
Löng röð er í tím­ana hjá Önnu. mbl.is/​Anna­ei­ríks.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert