Vinsælasta uppskrift Alberts

Albert Eiríksson er frábær í eldhúsinu sem og annars staðar.
Albert Eiríksson er frábær í eldhúsinu sem og annars staðar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Al­bert Ei­ríks­son, mat­gæðing­ur hér á Mat­ar­vefn­um, er ákaf­lega vin­sæll meðal les­enda bæði hér á mbl.is og á síðu sinni Al­berteld­ar.com Þessi tertu­upp­skrift er sú vin­sæl­asta af upp­skrift­um hans á síðunni árið 2017 en um er að ræða upp­skrift sem Stein­unn frænka hans hef­ur breytt lít­il­lega en upp­skrift­in birt­ist fyrst á öðru mat­ar­bloggi sem við einnig fáum garna­gaul yfir reglu­lega, eld­husog­ur.com.

Vin­sæl­ustu upp­skrift­ir Al­berts 2017 

Vinsælasta uppskrift Alberts

Vista Prenta

Drauma­terta

5 egg
200 g syk­ur
150 g pek­an­hnet­ur, saxaðar
150 g döðlur, saxaðar
150 g suðusúkkulaði, saxað
70 g korn­fl­ex
1/​2 tsk. salt
1 1/​2 tsk. lyfti­duft
1/​2 l rjómi

Fílakara­mellukrem:

200 g Fílakara­mell­ur
1 dl rjómi

Botn­ar: Þeytið sam­an egg og syk­ur. Bætið hnet­um, döðlum, súkkulaði, korn­fl­exi og lyfti­dufti. Blandið sam­an við með sleikju. Bakið í tveim­ur krin­lótt­um form­um við 200° í ca. 20-30 mín. Kælið botn­ana.

Þeytið rjómann og setjið á milli botn­anna.

Bræðið kara­mell­urn­ar í potti með rjóm­an­um. Hellið yfir kök­una.

Látið tert­una bíða í ís­skáp í nokkra klukku­tíma og bjóðið svo í kaffi!

Draumatertan er vinsælasta uppskriftin á Alberteldar.com árið 2017.
Drauma­tert­an er vin­sæl­asta upp­skrift­in á Al­berteld­ar.com árið 2017. mbl.is/​Al­berteld­ar.com
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert