Morgungrauturinn hennar Gurrýjar

„Ef þú ert að taka til í mataræðinu árið 2018 …
„Ef þú ert að taka til í mataræðinu árið 2018 þá mæli ég með að þú hugsir fyrir hverja máltíð, er þetta gott fyrir mig? Hvað gerir þetta fyrir mig? Og þannig að taka meðvitaða ákvörðun í hvert skipti sem þú borðar,“ segir Gurrý. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Guðríður Torfa­dótt­ir, bet­ur þekkt sem Gurrý ofurþjálf­ari í Big­gest Looser, tek­ur janú­ar með trompi og ham­ast nú við að leggja loka­hönd á nýtt æf­inga­kerfi.  

„Ég var að klára að hanna glæ­nýtt æf­inga­kerfi fyr­ir kon­ur sem vilja kom­ast í geggjað form. Þetta æf­inga­kerfi heit­ir Hot&Strong og er sam­blanda af styrk og HIIT-æf­ing­um en HIIT er mik­il ákefð í stutt­an tíma og eyk­ur gríðarlega þol og brennslu. Hér tek ég allt það besta og blanda því sam­an. Sjálf vil ég æfa þannig að ég sé í topp­formi án þess að þurfa að æfa oft á dag. Þetta kerfi er í sölu á gurry.is og hefjast æf­ing­ar í næstu viku,“ seg­ir Gurrý sem einnig er með stærri verk­efni í smíðum en hún hætti ný­lega sem fram­kvæmda­stjóri Re­book Fit­n­ess.

Hvað borðar þú yf­ir­leitt eft­ir æf­ingu? „Mér finnst best að æfa seinnipart­inn og borða svo kvöld­mat eft­ir æf­ingu. Sé ekki ástæðu til að borða sér­stak­lega eft­ir æf­ingu, bara halda máltíðunum inni sem eru morg­un­mat­ur, há­deg­is­mat­ur, milli­mál og kvöld­mat­ur.  Þá er hægt að borða þess­ar máltíðir fljót­lega eft­ir æf­ing­una. Ann­ars finnst mér gott að fá mér soðið egg og ban­ana.“

Minni tíska og tyggja meira

Spurð um holl­ræði fyr­ir þá sem vilja bæta mataræðið svar­ar Gurrý: „Ekki hlaupa á eft­ir öll­um kúr­um eða tísku­bylgj­um því það sem hent­ar ein­um þarf ekki endi­lega að gera það fyr­ir þig. Best er að borða reglu­lega og helst alltaf á sama tíma dags. Við erum kom­in í al­gjöra vit­leysu með mataræðis­leiðbein­ing­ar og ger­um hlut­ina of flókna og ein­blín­um á smá­atriði sem breyta engu. Lyk­il­atriði er að borða venju­leg­an mat sem er lítið unn­inn. Má nefna ávexti, græn­meti, baun­ir, hrein­ar mjólk­ur­vör­ur, kjöt, fisk, egg, hnet­ur og ol­í­ur.  Svo er aldrei hægt að tuða of mikið um það að tyggja mat­inn sem við borðum, ef þú ger­ir það ekki þá fer melt­ing­in í rugl og við fáum ekki alla nær­ing­una úr matn­um.“

Upp­á­haldskaffi­hús ? „Te og kaffi er núna upp­á­halds en þar fæ ég koff­ín­laus­an cappucc­ino en ég hætti að drekka koff­ín fyr­ir nokkru síðan. Hljóm­ar fár­an­lega að panta tvö­fald­an koff­ín­laus­an cappucc­ino en ég geri það nú samt.“

Ef þú mætt­ir velja eitt hrá­efni til að taka með þér á eyðieyju hvað væri það? „Ég myndi taka með mér egg en ég gæti mögu­lega lifað á þeim án þess að deyja úr leiðind­um.“

Ef þið viljið fylgj­ast með Gurrý á sam­fé­lags­miðlum þá er hún með:

Snapchat: gurry.is
In­sta­gram: gurrytorfa
Fjarþjálf­un: gurry.is

Morgungrauturinn hennar Gurrýjar

Vista Prenta

Súkkulaði-chia­graut­ur

3 msk. chia­fræ
2 boll­ar vatn
1 tsk. kanill
1 tsk. kar­dimommu­duft
2 tsk. hreint kakó
Rús­ín­ur
Salt

Ofan á graut­inn:
Ávext­ir eft­ir smekk
Kókós­flög­ur
Rjómi

Byrja á að leggja chia­fræ í bleyti í um 10 mín­út­ur. Magn af vatni er smekks­atriði en ég vil hafa minn graut í þynnri kant­in­um. Blanda svo krydd­um, kakó og rús­ín­um við og hita í ör­bylgju­ofni eða í potti, sjálf nota ég bara ör­bylgju­ofn­inn. Chia­graut­ur er svo góður heit­ur en má líka borða kald­an.

Setja á graut­inn þá ávexti sem þú átt en ég notaði hér blá­ber, rautt epli og peru. Svo smá rjóma yfir en allt er betra með rjóma.

 

Girnilegur morgungrautur.
Girni­leg­ur morg­ungraut­ur. mbl.is/​Har­ald­ur Jónas­son/​Hari
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert