Taílenskur lax með núðlum og kóriander

mbl.is/Svava Gunnarsdóttir

Lax er mik­ill herra­manns­mat­ur sem hægt er að mat­reiða á ótal vegu. Hér kenn­ir Svava á Ljúf­meti og lekk­er­heit okk­ur hvernig á að elda hann á taí­lenska vísu með núðlum og kórí­and­er.

Taílenskur lax með núðlum og kóriander

Vista Prenta

Taí­lensk­ur lax með núðlum og kóri­and­er

  • um 800 g laxa­flök
  • nokkr­ar mat­skeiðar sojasósa

Leggið laxa­flök­in í eld­fast mót eða ofnskúffu sem hef­ur verið klædd með bök­un­ar­papp­ír. Setjið nokkr­ar mat­skeiðar af soja yfir og bakið í ofni við 180° í 15 mín­út­ur.

  • 250 g eggjanúðlur
  • 1,5 dl sweet chil­isósa
  • 1-2 msk. sojasósa
  • 1 rauð paprika, hökkuð
  • 1 búnt vor­lauk­ur, skorið í sneiðar
  • 2 dl kasjúhnet­ur

Sjóðið núðlurn­ar eft­ir leiðbein­ing­um á pakka. Setjið sweet chil­isósu og sojasósu á pönnu og steikið núðlurn­ar, vor­lauk, papriku og kasjúhnet­ur í sós­un­um. Stráið fersku kóri­and­er yfir áður en núðlurn­ar eru born­ar fram. Berið núðlurn­ar fram með lax­in­um og lime-bát­um til að kreista yfir.

Ljúffengur lax að taílenskum hætti.
Ljúf­feng­ur lax að taí­lensk­um hætti. mbl.is/​Svava Gunn­ars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert