Sous vide-uð súrsæt svínasíða

mbl.is/Bon Appetit

Hér kem­ur girni­leg upp­skrift að sous vide-aðri svín­asíðu sem er í upp­á­haldi hjá mörg­um. Upp­skrift­in er ekki svo flók­in en er engu að síður skemmti­leg viður­eign­ar.

Sous vide-uð súrsæt svínasíða

Vista Prenta

Sous vide-uð súr­sæt svín­asíða

  • 900 g úr­beinuð svín­asíða
  • 6 vor­lauk­ar, skorn­ir í 2-3 sm bita
  • 60 ml hun­ang
  • 60 ml soya-sósa
  • 3 msk. sam­bal oelek (sterk chili-sósa)
  • 1 msk. repju­olía eða önn­ur hlut­laus olía
Áhöld
  • sous vide-eld­un­argræja
  • einnota eða fjöl­nota loft­tæm­an­leg­ur poki
Aðferð:
  1. Festið sous vide-græj­una við stór­an pott. Fyllið pott­inn af volgu vatni.
  2. Skerið kjötið í 5 sm breiðar sneiðar. Setjið svína­kjötið, vor­lauk­inn, huang, soya-sósu og sam­bal oelek í pok­ann og loft­tæmið.
  3. Setjið pok­ann í vatnsbaðið og gætið þess að pok­inn sé all­ur í kafi. Hitið vatnið í 75 gráður.
  4. Eldið í að minnsta kost átta tíma og allt upp í 16. Gott er að elda kjötið yfir nótt en auðvitað er ekk­ert mál að hefjast handa að morgni ef snæða á að kvöldi. Takið pok­ann úr vatnsbaðinu og látið hvíla í 15 mín­út­ur áður en pok­inn er opnaður. Við þetta mun kjötið draga í sig meiri safa.
  5. Takið kjötið úr pok­an­um og þerrið með eld­húspapp­ír. Hitið stóra pönnu á háan hita. Bætið ol­í­unni á pönn­una og steikið kjötið á öll­um hliðum þar til það er orðið brúnað og krispí. Þetta ger­ist frem­ur hratt þannig að ekki skal skilja kjötið eft­ir á pönn­unni. Hun­angið ger­ir það að verk­um að kjötið brún­ast fljótt og verður sér­lega áferðarfallegt. Setjið á disk og berið fram.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert