Ljúffengt lasagna að hætti sjúkraþjálfarans

Sandra heldur mikið upp á þetta lasagna sem vel er …
Sandra heldur mikið upp á þetta lasagna sem vel er hægt að borða með góðri samvisku. mbl.is/Árni Sæberg

Sandra Dögg Árna­dótt­ir sjúkraþjálf­ari, fyrr­ver­andi landsliðsþjálf­ari í áhaldafim­leik­um og fag­stjóri hjá Hreyf­ingu, þykir gera eitt besta græn­met­islasagna á land­inu. Við blikkuðum hana og feng­um upp­skrift­ina sem er al­gjört æði! 

Ljúffengt lasagna að hætti sjúkraþjálfarans

Vista Prenta

Ljúf­fengt lasagna

Tóm­at­massi

600-700 g brok­kolí og blóm­kál. Brytja smátt niður þannig að þetta sé eins og nauta­hakk. Mín­um börn­um finnst það betra.
2 krukk­ur niðursoðnir tóm­at­ar – forðast tóm­at­vör­ur úr áldós­um.
2 litl­ar krukk­ur tóm­at­p­asta/​tóm­at­púrra – forðast tóm­at­vör­ur úr áldós­um.
3 stk. hvít­lauks­geir­ar, pressaðir í hvít­lauk­spressu. Ég elska hvít­lauk en það má nota minna.
1 ½ msk. basilíka, þurrkuð eða fersk. Klippi niður eina hand­fylli.
2 tsk. sjáv­ar­salt. 

Tóm­at­mass­inn soðinn lok­laust í 30 mín. Ég er alltaf að prófa mig áfram með tóm­at­vör­ur. Prófaði núna sein­ast vör­urn­ar frá Him­neskt en notaði þá meira krydd.

Osta­massi

2-3 hrærð egg
2 stór­ar doll­ur kota­sæla
½ bolli par­mes­an (meira held­ur en minna), rifið niður
2 msk. stein­selja, þurrkuð eða fersk, þá klippi ég niður eina hand­fylli
1 tsk. sjáv­ar­salt
Pip­ar eft­ir smekk 

Hræri öllu sam­an í skál.

Smyr eld­fast mót með góðri hitaþol­inni olíu, núna er ég að nota avóka­dóol­íu. Tóm­at­mass­inn er aðeins meiri en osta­mass­inn. Ég geri oft­ast 3 lög af tóm­at­mass­an­um á móti 2 lög­um af osta­mass­an­um.

1 ½ pakki af lasagna­plöt­um, heil­hveiti eða græn­ar (spínat). Það er líka gott að skera kúr­bít (zukk­ini) í þunn­ar sneiðar, þurrka í ofni við lág­an hita og nota í stað pastaplatna.

Sett sam­an

Lag af tóm­at­massa – raða lasagna­plöt­um yfir – lag af osta­massa og svo koll af kolli. Enda á tóm­at­massa.

Rif­inn mozzar­ella-ost­ur yfir eft­ir smekk.

Sett í ofn­inn í 45 mín. við 180°. Gott að setja í ofn­inn fyrst í 15 mín. með eng­an ost yfir og svo setja ost­inn og aft­ur inn í 30 mín.

Ferskt krydd gerir allan mat betri.
Ferskt krydd ger­ir all­an mat betri. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
Girnilegt og gott fyrir alla fjöslkylduna.
Girni­legt og gott fyr­ir alla fjösl­kyld­una. mbl.is/Á​rni Sæ­berg
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert