Próteinríkur hádegisverður

Gurrý heldur úti síðunni gurry.is.
Gurrý heldur úti síðunni gurry.is. mbl.is/ Haraldur Jónasson/Hari

Guðríður Torfa­dótt­ir, bet­ur þekkt sem Gurrý ofurþjálf­ari í Big­gest Looser, elsk­ar egg. Hún seg­ist sjald­an fá leið á þeim. Hér deil­ir hún einni af sinni upp­á­halds­upp­skrift­um að eggja­köku. Prótein­rík­ur og staðgóður há­deg­is­verður sem kropp­ur­inn elsk­ar.

Próteinríkur hádegisverður

Vista Prenta

Eggjakaka Gurrýj­ar:

6 egg
2 msk. sýrður rjómi
2 msk. kota­sæla
1/​2 tsk. salt
1/​4 tsk. chilikrydd
1/​2 tsk. pip­ar
100 g brok­kolí
1/​2 rauð paprika
1 dl ost­ur

Hræra eggj­um, sýrðum rjóma og kota­sælu sam­an með gafli. Kryddið með salti og pip­ar. Steikið svo græn­metið í kó­kosol­íu og kryddið með chilikryddi, salt og pip­ar.

Setja steikta græn­metið í eld­fast mót og hella svo eggja­hrær­unni yfir. Strá osti yfir og baka í ofni í 30-40 mín­út­ur á 180 gráðu hita.

Þessi rétt­ur er full­kom­inn fyr­ir tvo.

Eggjakaka með ostatopp er huggulegur hádegisverður.
Eggjakaka með ostatopp er huggu­leg­ur há­deg­is­verður. mbl.is/​Har­ald­ur Jónas­son/​Hari
Salat með og málið er dautt!
Sal­at með og málið er dautt! mbl.is/​Har­ald­ur Jónas­son/​Hari
Gurrý er annar þjálfaranna í vinsælu þáttunum The Biggest Loser …
Gurrý er ann­ar þjálf­ar­anna í vin­sælu þátt­un­um The Big­gest Loser Ísland. mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert