Lágkolvetnakjúklingur í rjómaostasósu

Lágkolvetnakjúklingaréttur með ítölsku ívafi og ostatoppi.
Lágkolvetnakjúklingaréttur með ítölsku ívafi og ostatoppi. mbl.is/

Gunn­ar Már Sig­fús­son, einkaþjálf­ari og talsmaður lág­kol­vetnalífstíls, er höf­und­ur­inn að þess­ari upp­skrift. Gunn­ar stend­ur nú í ströngu við að kokka upp nýj­ar upp­skrift­ir viku­lega fyr­ir heilu­spakk­ann hjá Einn, tveir og elda en spurn eft­ir holl­um matarpökk­um er mik­il enda meist­ara­mánuður far­inn í gang.

Þessi upp­skrift er fyr­ir 2. 

400 g kjúk­linga­læri, úr­beinuð
150 g gul­ræt­ur
1 stk. lauk­ur
2 geir­ar hvít­lauk­ur
100 g rjóma­ost­ur
50 g mozzar­ella
1 dós hakkaðir tóm­at­ar
2 stk. tóm­at­ar
2 msk. ít­ölsk krydd­blanda
1/​3 tsk. pip­ar
1/​2 tsk. salt
2 grein­ar basil
1 msk. tóm­at­púrra
100 g sal­at
1/​2 rauðlauk­ur
40 g feta­ost­ur

Aðferð:

Skerðu gul­ræt­urn­ar í sneiðar og lauk­ana smátt og steiktu upp úr olíu á pönnu þar til græn­metið er farið að mýkj­ast.

Skerðu kjúk­ling­inn niður í 2-3 hluta hvert læri og bættu á pönn­una. Kryddaðu með krydd­blönd­unni og steiktu í 5 mín­út­ur á hvorri hlið. Ef pann­an er stór get­urðu notað hana áfram en ann­ars skaltu setja þessa blöndu í pott og bæta við hana tóm­at­púrr­unni og hökkuðu tómöt­un­um og láta malla í 10 mín­út­ur. 

Saxaðu basilik­una og fersku tóm­at­ana frek­ar smátt og bættu í pott­inn ásamt rjóma­ost­in­um. Hrærðu öllu vel sam­an. Helltu blönd­unni í eld­fast mót.

Skerðu mozzar­ella-ost­inn í minni hluta og settu yfir rétt­inn og bakaðu í ofni í um 15 mín­út­ur. Rífðu sal­atið gróft niður, saxaðu rauðlauk­inn smátt og myldu feta­ost­inn. Blandaðu öllu sam­an í skál ásamt 1 msk. af olíu og klípu af salti. Berðu rétt­inn fram með sal­at­inu.​

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert