Klassísk uppskrift að saltkjöti og baunum

Hann Úlfar Finnbjörnsson er mikill meistari í eldhúsinu.
Hann Úlfar Finnbjörnsson er mikill meistari í eldhúsinu. mbl.is/Kjarnafæði

Hér er komin klassísk og góð uppskrift að saltkjöti og baunum. Uppskriftin er fengin frá Kjarnafæði.is og er úr smiðju matreiðslumannsins Úlfars Finnbjörnssonar sem er vissulega mikill gæðastimpill. Gleðilegan sprengidag!

Saltkjöt og baunir

Setjið kjötið í pott með 2,5 L af vatni og sjóðið við vægan hita í 60-75 mín. Hitið olíu í öðrum potti og kraumið beikon og lauk í 2 mín. Bætið þá baunum og vatni í pottinn og sjóðið við vægan hita í 30 mín. Hrærið í pottinum reglulega. Bætið þá 1-2 kjötbitum í súpupottinn og sjóðið í 30 mín. í viðbót.

Fyrir 4-6

  • 1,5 kg saltkjöt
  • 2,5 L vatn
  • 2 msk. olía
  • 1 laukur, smátt saxaður
  • 2 beikonsneiðar, smátt saxaðar
  • 250 g gular baunir, lagðar í kalt vatn yfir nótt, síðan er vatnið sigtað frá
  • 2 l vatn
  • ½ tsk. nýmalaður pipar

Aðferð:

Setjið kjötið í pott með 2,5 l af vatni og sjóðið við vægan hita í 60-75 mín. Hitið olíu í öðrum potti og kraumið beikon og lauk í 2 mín. Bætið þá baunum og vatni í pottinn og sjóðið við vægan hita í 30 mín. Hrærið í pottinum reglulega. Bætið þá 1-2 kjötbitum  í súpupottinn og sjóðið í 30 mín. í viðbót. Þegar kjötið er orðið meyrt undir tönn og baunirnar mjúkar er súpan maukuð með töfrasprota eða í matvinnsluvél. Sumir vilja hafa súpuna örlítið grófa, þá er hún pískuð duglega með písk. Smakkið til með pipar.

Berið súpuna fram með kjötinu ásamt soðnum kartöflum, rófum og gulrótum.

<em>Verði ykkur að góðu!</em>
Ekki örvænta ef þú gleymdir að leggja baunirnar í bleyti. …
Ekki örvænta ef þú gleymdir að leggja baunirnar í bleyti. Hægt er að kaupa baunir sem búið er að leggja í bleyti víða í verslunum t.d. Bónus. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert