Sturluð sætkartöflu-paleo-morgunverðarsamloka

Sítrónusafi er dásamlegur á avókadó. Hressir við bragðið og kemur …
Sítrónusafi er dásamlegur á avókadó. Hressir við bragðið og kemur í veg fyrir að það verði brúnt. Við mælum með að skvetta nokkrum dropum yfir avókadóið áður en það fer á samlokuna. mbl.is/www.fitmittenkitchen.com

Netið elsk­ar þessa morg­un­verðarsam­loku ef marka má sam­fé­lags­miðla þar sem þess­ari upp­skrift er deilt lon og don. Upp­skrift­in er frá einkaþjálf­ar­an­um Ashley á Fit Mitten Kitchen.

Lík­lega mætti einnig steikja deigið á pönnu og gera klatta og jafn­vel frysta og henda í rista­vél. 

Girnilegt!
Girni­legt! mbl.is/​www.fit­mittenkitchen.com

Sturluð sætkartöflu-paleo-morgunverðarsamloka

Vista Prenta

2 egg (1 fer í deigið hitt sem álegg)
1 lít­il óelduð sæt kart­afla,án hýðis og rif­in niður – best er að kreista mesta vatnið úr henni í eld­húspapp­ír eða visku­stykki 
1/​4 tsk. cum­in 
1/​8 tsk. paprikukrydd 
1/​8 tsk. hvít­laukssalt 
olía
1 bolli græn­kál 
1/​2 avóka­dó
salt og pip­ar eft­ir smekk 

Hitið vöfflu­járnið og setjið vel af olíu á það. 

Í miðlungs­stóra skál er eitt egg hrært. Bætið við rifnu kart­öfl­unni (rúm­lega bolli), krydd­un­um og 1 tsk. af olíu. Hrærið þessu vel sam­an. 

Þegar vöfflu­járnið er orðið vel heitt er blönd­unni hellt í járnið og látið þekja vöfflu­flöt­inn vel. Þrýstið járn­inu var­lega niður og leyfið að bak­ast í 4-5 mín­út­ur eða þar til vaffl­an er orðin gyllt og stökk. Þegar vaffl­an er til­bú­in er hún fjar­lægð mjög var­lega svo hún hrynji ekki í sund­ur. 

Steikið græn­kálið upp úr olíu, steikið hitt eggið og skerið avóka­dóið í sneiðar. Saltið og piprið ef vill. Raðið á helm­ing vöffl­unn­ar og lokið með hinum helm­ingn­um. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert