Iðunn Sigurðardóttir, yfirkokkur á Matarkjallaranum, gerði frábæra hluti í keppninni um kokk Íslands sem fram fór á dögunum. Við stóðumst því ekki mátið og fengum hana til að deila með okkur uppskrift sem við erum handvissar um að eigi eftir að slá í gegn.
Hér erum við að tala um stekta bleikju sem er með epla- og möndluflögusalsa, kryddjurtasalati, pikkluðu engifermajónesi og geitaosti. Í okkar bókum er þetta alslemma sem á eftir að trylla matargesti.
Iðunn Sigurðardóttir, yfirkokkur á Matarkjallaranum.
Kristinn Magnússon
Steikt bleikja með kryddjurtasalati og geitaosti
Steikt bleikja
- Heilt flak roðhreinsað og pönnusteikt upp úr smjöri og salti.
Epla- og möndluflögu-salsa
- 1 grænt epli
- 1 sítróna
- 10 cherry-tómatar
- 30 ml basil-olía
- 30 gr. ristaðar möndluflögur
Aðferð: Eplið er skorið í litla teninga og velt upp úr sítrónusafa, cherry-tómatar skornir í 4 hluta, basil 30 gr. og olía 100 ml unnið saman í blandara þangað til hitinn er 85°C.
Eplin, tómatarnir, möndluflögurnar og olían hitað saman og sett ofan á bleikjuna.
Kryddjurtasalat
- Kerfill
- Vatnakarsi
- Klettasalat
- Dill
Aðferð: Kryddjurtirnar eru pillaðar í hæfilegar stærðir og settar ofan á bleikjuna, ekkert mál að skipta út jurtunum fyrir aðrar svipaðar jurtir.
Pikklað engifer-majónes
- 100 ml japanskt mayo
- 30 gr. pikklað engifer (sushi engifer)
- 10 stk. graslaukur
Aðferð:
- Engiferið og graslaukurinn er saxað smátt niður. Því er síðan blandað við japanska mayoið. Setjið fullt af litlum doppum af mayoi ofan á bleikjuna.
- 1/2 sítróna grilluð vel í sárið.
- Í lokin er geitaostur rifinn yfir allt.
- Steikt bleikja með kryddjurtasalati og geitaosti
Bleikja stendur alltaf fyrir sínu.
Kristinn Magnússon