Lax með Kryddsmjöri og kremuðu spínati

Ginrilegt hollt og gott. Fyrir þá sem ekki vilja rósarkál …
Ginrilegt hollt og gott. Fyrir þá sem ekki vilja rósarkál má vel nota spergilkál. mbl.is/Einn,tveir og eldar

Kokk­arn­ir hjá Einn, tveir og elda mæla með þess­ari up­spkrift­in en hún tek­ur stutta stund og kæt­ir svo sann­ar­lega kropp­inn enda holl og góð. 

Lax með Kryddsmjöri og kremuðu spínati

Vista Prenta

Lax með Krydds­mjöri og kremuðu spínati og rósa­káli
Fyr­ir 2

Hrá­efni:
360 g lax
3 grein­ar kórí­and­er
1/​2 stk Lime, saf­inn
300 g rósa­kál
100 g spínat
40 g rjóma­ost­ur
70 g smjör

Aðferð:

Hitaðu ofn­inn á 180°C og stilltu á blást­ur. Taktu 40 g smjör úr ís­skápn­um og leyfðu því að standa. Settu vatn í pott og hitaðu að suðu, skerðu rósa­kálið í fernt og settu út í pott­inn. Leyfðu því að sjóða í fimm mín­út­ur. Þegar fimm mín­út­ur eru liðnar skaltu sigta rósa­kálið frá vatn­inu. 

Steiktu lax­inn á heitri pönnu í um það bil mín­útu á hvorri hlið upp úr olíu og kryddaðu með salti og smá pip­ar. Færðu lax­inn í eld­fast mót og bakaðu í ofni í um það bil 10 mín­út­ur. 

Þegar smjörið hef­ur náð stofu­hita eða er orðið þokka­lega mjúkt skaltu fínsaxa kórí­and­er og blanda því við smjörið ásamt kreist­um lime safa. Best er að blanda þessu sam­an með gaffli og geyma svo krydds­mjörið í ís­skápn­um á meðan næstu skref eru fram­kvæmd. 

Steiktu rósa­kálið og spínatið upp úr 30 g af smjöri (ekki krydds­mjör­inu) í um það bil þrjár til fjór­ar mín­út­ur. Bættu þá rjóma­ost­in­um við og smakkaði þig til með salti. 

Berðu svo lax­inn fram ásamt krydds­mjör­inu og kremuðu rós­ar­kál- og spínatblönd­unni. Njótið vel!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert