Seiðandi tælenskt fiskikarrí

Seiðandi tælenskt karrí.
Seiðandi tælenskt karrí. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Seiðandi karrí hljóm­ar eins og draum­ur þessa dag­ana meðan beðið er eft­ir sumri. Þessi bragðgóði og skemmti­legi fisk­rétt­ur kem­ur úr smiðju Ragn­ars Freys Ingvars­son­ar, en hann er bet­ur þekkt­ur sem Lækn­ir­inn í eld­hús­inu.

Seiðandi tælenskt fiskikarrí

Vista Prenta

Seiðandi taí­lenskt fiskik­arrí með brún­um basmati-hrís­grjón­um
Fyr­ir fjóra

  • 1 kg af blönduðum fiski - lax, langa og rækj­ur
  • 250 g blóm­kál
  • 1 dós af kókós­mjólk
  • 100 ml vatn
  • 2 msk. jóm­frúarol­ía
  • 1 tsk. fiskikraft­ur
  • 2 msk. rautt taí­lenskt karrí
  • 1/​2 rauður chili pip­ar
  • 5 cm engi­fer
  • 2 hvít­lauks­geir­ar
  • 1/​2 rauðlauk­ur
  • salt og pip­ar
  • 200 g brún hrís­grjón
  • 1 ten­ing­ur kjúk­lingakraft­ur

Aðferð:

  1. Setjið hrís­grjón­in í pott með nógu vatni. Hrærið kjúk­lingakraft­in­um sam­an við. Þegar þau eru til­bú­inn - hellið vatn­inu frá.
  2. Skerið lauk­inn, chili, engi­fer og hvít­lauk smátt og steikið í jóm­frúarol­í­unni þangað til allt er fal­lega mjúkt og ilm­andi. 
  3. Sneiðið fisk­inn niður í munn­bita­stóra bita og hafið á hliðarlín­unni þangað til  sós­an er til­bú­in.
  4. Blandið kó­kos­mjólk­inni og vatn­inu sam­an við og hitið að suðu.
  5. Setjið svo karríið sam­an við. Blandið vand­lega sam­an við ásamt fiskikraft­in­um. 
  6. Næst er að setja blóm­kálið sam­an við sós­una og látið krauma í sjö til tíu mín­út­ur.
  7. Bætið svo fisk­in­um sam­an við - hann þarf ekki lang­an tíma - sjö mín­út­ur eða svo ættu að duga. 
  8. Rétt áður en hrís­grjón­in eru til­bú­in, bætið þið rækj­un­um sam­an við sós­una - þær þurfa ekki nema tvær mín­út­ur eða svo. 
  9. Ef þessi sósa er ekki girni­leg - þá veit ég ekki hvað?
  10. Setjið hrís­grjón­in á disk og setjið svo rausn­ar­leg­an skammt af fisk­in­um yfir grjón­in. Skreytið með kórí­and­er - þ.e.a.s. fyr­ir þá sem eru ekki með of­næmi fyr­ir kórí­and­er.
Prýðisgóður kvöldverður.
Prýðisgóður kvöld­verður. mbl.is/​Ragn­ar Freyr Ingvars­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert