Páskakakan 2018

Kakan er fremur páskaleg með möndlueggjunum.
Kakan er fremur páskaleg með möndlueggjunum. mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

Berg­lind Hreiðars á Gotteri.is kynn­ir til leiks Páska­kök­una í ár sem við erum virki­lega hrif­in af. Mar­engs með gúm­melaði á alltaf upp á pall­borðið og svo er það svo fal­legt þegar mar­engs­inn er gerður með marm­ara­áferð. 

Heimasíða Berg­lind­ar: Gotteri og ger­sem­ar

Páskakakan 2018

Vista Prenta

Páska­tert­an 2018

Mar­engs

  • 100 gr. kara­mellu­möndl­ur með súkkulaði og sjáv­ar­salti
  • 130 gr. brætt suðusúkkulaði (kælt niður)
  • 6 eggja­hvít­ur við stofu­hita
  • ¼ tsk. salt
  • 350 gr. syk­ur
  • 2 tsk. vanillu­drop­ar
  • ½ tsk. möndlu­drop­ar

Fyll­ing og skraut

  • 700 ml rjómi
  • 30 gr. flór­syk­ur
  • 300 gr. Til ham­ingju-kara­mellu­möndl­ur með súkkulaði og sjáv­ar­salti
  • Raspað suðusúkkulaði (um 40 gr.)

Aðferð

  1. Hitið ofn­inn 110°C. Teiknið 3 x 20 cm hringi á bök­un­ar­plöt­ur (tveir kom­ast fyr­ir á ann­arri og einn á hinni).
  2. Saxið möndl­urn­ar niður og leggið til hliðar.
  3. Bræðið suðusúkkulaði og látið standa á meðan mar­engs­inn er þeytt­ur.
  4. Þeytið sam­an eggja­hvít­ur og salt þar til froða mynd­ast og bætið þá sykr­in­um sam­an við í litl­um skömmt­um. Þeytið á hæstu still­ingu þar til topp­arn­ir halda sér (nokkr­ar mín­út­ur). Bætið þá vanillu- og möndlu­drop­um sam­an við og þeytið sam­an við.
  5. Hellið söxuðum möndl­um í skál­ina og blandið sam­an við með sleif. Að lok­um er bræddu suðusúkkulaði hrært var­lega sam­an við með sleif en var­ist að hræra of mikið, fal­legt er að hafa marm­ara­áferð á mar­engs­in­um.
  6. Bakið í 2 ½ klst. og slökkvið þá á ofn­in­um og leyfið mar­engs­in­um að kólna inni í hon­um áður en þið takið út.
  7. Fyr­ir fyll­ing­una er rjómi og flór­syk­ur þeytt sam­an og skipt í þrennt, smurt á milli botn­anna og ofan á síðasta botn­inn.
  8. Þá er röspuðu súkkulaði og kara­mellu­möndl­um stráð yfir topp­inn til skrauts.
  9. Best er að setja rjómann á milli að minnsta kosti sóla­hring áður en kök­unn­ar á að njóta, þá verður hún meira djúsí og góð.
Þessi kaka á eflaust eftir að slá í gegn á …
Þessi kaka á ef­laust eft­ir að slá í gegn á mörg­um veislu­borðum. mbl.is/​Berg­lind Hreiðars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert