Páskaterta Alberts

mbl.is/Albert Eiríksson

Al­bert Ei­ríks­son er með putt­ana á púls­in­um þegar kem­ur að mat og mannasiðum og hann hafði á orði að það væru bók­staf­lega all­ir að baka kök­ur þessa pásk­ana. Slíkt telst vit­an­lega gleðifregn enda lum­ar Mat­ar­vef­ur­inn á kynstr­in­um öll­um af girni­leg­um köku­upp­skrift­um.

Hér er hins veg­ar fram­lag Al­berts sem er í senn sér­lega páska­leg og sum­ar­leg. 

Páska­terta Al­berts

Vista Prenta

Páska­tert­an 2018 – app­el­sínu­terta með smjörkremi.

  • 250 g mjúkt smjör
  • 250 g syk­ur
  • 4 egg
  • 250 g hveiti
  • 1 1/​2 tsk lyfti­duft

Aðferð:

Þeytið smjör og syk­ur vel sam­an. Bætið við eggj­un­um, einu í einu og þeytið vel sam­an. Hrærið hveiti og lyfti­duft sam­an við.

Bakið í tertu­formi í 20-30 mín. eft­ir stærð forms­ins við 175°C.

Hvolfið tert­unni á tertudisk.

  • Börk­ur og safi úr 1/​2 app­el­sínu
  • 2-3 msk hun­ang eða syk­ur
  • 3 msk Grand Marnier
  • smá salt

Aðferð:

Hitið app­el­sínu­börk og safa með sykr­in­um í potti og bætið Grand út í, áður en hellt er yfir kök­una meðan hún er enn heit.

Krem

  • 300 g mjúkt smjör
  • 1 b flór­syk­ur
  • 1 dl rjómi
  • 1/​2 tsk salt
  • 1 msk hun­ang
  • gul­ur mat­ar­lit­ur

Aðferð:

Þeytið vel sam­an og og setjið á tert­una.

mbl.is/​Al­bert Ei­ríks­son
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert