Kryddkartöflur með hnetukurli

Kryddkartöflur með hnetukurli.
Kryddkartöflur með hnetukurli. mbl.is/Haraldur Jónasson/Hari

Þetta er ein út­gáfa af smur­brauði með kart­öfl­um sem er vel hægt að gera heima þó hún sé ekki ná­kvæm­lega eins og á mynd­inni en það er hægt að leika sér með þessa upp­skrift. Eina skil­yrðið er að hrá­efnið sé fyrsta flokks.

Kryddkartöflur með hnetukurli

Vista Prenta
Krydd­kart­öfl­ur með hnetukurli
  • 1 kg kart­öfl­ur
  • 100 gr stein­seljupestó
  • 20 gr hnet­ur eða sól­blóma­fræ

Aðferð:

  1. Sjóðið kart­öfl­ur í söltu vatni
  2. Kart­öfl­ur eru kæld­ar. Blandið pestó við.
  3. Skerið brauðið í sneiðar. Sneiðið kart­öfl­urn­ar þunnt og leggið ofan á brauðið. Ofan á þetta fara steikt­ar hnet­ur eða fræ. Saltið og piprið eft­ir smekk.
  4. Skreytið að list­ræn­um hætti. Borið fram með graslauks­majónesi.

Graslauks­majónes

  • 2 eggj­ar­auður
  • tsk. dijon sinn­ep
  • 200 ml graslauks­bætt olía
  • 2 msk. edik eða sítr­ónusafi
  • salt og pip­ar eft­ir smekk

Aðferð:

  1. Gott er að vinna sam­an graslauk og olíu í mat­vinnslu­vél. (Það má líka saxa fersk­an graslauk úr garðinum og blanda við maj­ónesið).
  2. Eggj­ar­auður unn­ar sam­an í mat­vinnslu eða hræri­vél, graslauk­sol­í­unni hellt ró­lega út í. Kryddað með sinn­epi, salti og pip­ar ásamt ögn af ed­iki eða sítr­ónusafa.
  3. Þeir sem vilja hafa smur­brauðið veg­an nota að sjálf­sögðu veg­an-maj­ónes í staðinn.
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Þessi grein birt­ist
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert