Læknirinn galdraði fram girnilegan lax

Steiktur lax að hætti Ragnars bragðast eins og sælgæti.
Steiktur lax að hætti Ragnars bragðast eins og sælgæti. mbl.is/Ragnar Freyr Ingvarsson

Lax er í upp­á­haldi hjá flest­um enda al­gjört sæl­gæti. Ragn­ar Freyr Ingvars­son – bet­ur þekkt­ur sem lækn­ir­inn í eld­hús­inu – galdraði fram þenn­an góm­sæta lax sem hann seg­ir að sé bæði ein­fald­ur og góður. 

Læknirinn galdraði fram girnilegan lax

Vista Prenta

Ljúf­feng­ur steikt­ur lax á beði af byggotto með snögg­pæklaðri ag­úrku

Fyr­ir fjóra til sex

  • 1 kg lax
  • salt og pip­ar
  • 50 g smjör
  • 300 g perlu­bygg frá Valla­nesi
  • 1 rauður lauk­ur
  • 1 sell­e­rí­stöng
  • 100 g svepp­ir
  • 2 hvít­lauksrif
  • 1 hvít­víns­glas
  • 150 ml rjómi
  • 25 g smjör
  • 1/​2 ag­úrka
  • 2 msk. hvít­vín­se­dik
  • 1 tsk. salt
  • 1 tsk. syk­ur
  • safi úr hálfri sítr­ónu

Aðferð:

  1. Það er lík­lega heppi­leg­ast að byrja á því að und­ir­búa ag­úrk­una þar sem hún þarf um hálf­tíma til að verða til­bú­in. Ég keypti svona "spiralizer" þegar ég var á ráðstefnu í Banda­ríkj­un­um haustið 2016 og hef­ur tek­ist að klúðra þessu end­ur­tekið á þess­um 18 mánuðum. En þetta er að fara að tak­ast. Alltént tók ég hálfa ag­úrku og skar niður í fal­lega borða.
  2. Þeim var svo velt upp úr hvít­vín­se­diki, salti, sykri og svo auðvitað fersk­um sítr­ónusafa. Látið standa við her­berg­is­hita á meðan mat­ur­inn er eldaður.
  3. Skerið rauðlauk­inn, sell­e­ríið, svepp­ina og hvít­lauk­inn og steikið í um 25 g af smjöri þangað til að það er dá­sam­lega mjúkt og ilm­andi. Saltið og piprið.
  4. Sjóðið byggið sam­kvæmt leiðbein­ing­um í söltuðu vatni. Bætið svo bygg­inu sam­an við græn­metið og blandið vand­lega sam­an.
  5. Hellið svo glasi af víni sam­an við – og látið það sjóða niður.
  6. Hellið svo rjóm­an­um sam­an við – hrærið vand­lega sam­an og látið rjómann sjóða niður.
  7. Gor­don Rams­ey seg­ir að maður eigi að skera í lax­inn til að hindra að hann drag­ist sam­an og verp­ist á pönn­unni. Og svei mér þá – hann hef­ur ekki rétt fyr­ir sér – þess­ar þrjár Michel­in-stjörn­ur voru ekki að ástæðulausu.
  8. Saltið og piprið lax­inn og steikið svo í brúnuðu smjöri. Steikið fyrst með roðið niður þangað til að það er stökkt og snúið svo. Þegar fisk­ur­inn er eldaður í gegn þarf ekk­ert annað að gera en að bera hann fram!
  9. Svo þarf bara að raða þessu upp. Fyrst byggottó – svo lax­inn – síðan ag­úrk­an og berið fram með sneið af sítr­ónu. Full­komið.
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert