Innbökuð egg með camembert

Eintaklega girnilegt.
Eintaklega girnilegt. mbl.is/Anna Björk

Þessi út­færsla af morg­un­verði eða brunch (eða dög­urði) er til há­bor­inn­ar fyr­ir­mynd­ar en hér er tek­in tortilla-pönnukaka og egg­inu pakkað inn í hana ásamt úr­vals ost­um og skinku.

Þetta er eitt­hvað sem nauðsyn­legt er að prófa en það er mat­ar­blogg­ar­inn Anna Björk sem á heiður­inn að þess­ari upp­skrift. Sjálf seg­ir hún að þess­ir pakk­ar - eins og hún kall­ar þá - séu afar fljót­gerðir og bragðist ein­stak­lega vel. 

Mat­ar­bloggið henn­ar Önnu Bjark­ar er hægt að nálg­ast hér. 

Innbökuð egg með camembert

Vista Prenta

Inn­bökuð egg með ca­m­em­bert

  • 2 stór­ar mjúk­ar tortill­ur
  • 150 gr. góð skinka, í sneiðum
  • 1/​2- 2/​3 boll­ar af rifn­um sterk­um osti, t.d. chedd­ar eða sterk­ur Gouda
  • Nokkr­ir litl­ir bit­ar af Ca­m­em­bert eða Brie, ekki nauðsyn­legt
  • 2 stór egg

Meðlæti:

  • Gott sal­at

Aðferð:

  1. Ofn­inn er hitaður i 180°C. 2 álp­app­írs­ark­ir á stærð við hvora tortillu er spreyaður með olíu og kak­an lögð ofan á.
  2. Skin­kunni er raðað í hring í miðjunni og rifna ost­in­um dreyft ofaná skink­una, ásamt Ca­m­em­bert ef þú not­ar hann.
  3. Myndaðu gat í miðjunni og brjóttu svo egg ofan í gatið.
  4. Taktu tortillu­end­ann sem snýr að þér og legðu hann var­lega yfir eggið og ost­inn, síðan legg­urðu eftri end­ann ofan á þann neðri og brýt­ur upp á hvorn enda og held­ur síðan pakk­an­um sam­an með hönd­un­um á meðan þú pakk­ar hon­um eins inn í álp­app­ír­inn.
  5. Ekki hvolfa pökk­un­um, ann­ars lek­ur eggið úr þeim.
  6. Pakk­arn­ir eru sett­ir á plötu og bakaðir í 22-25 mín., þar til ost­ur­inn er bráðinn og eggið pass­lega eldað.
  7. Borið fram strax með góðu sal­ati, salti og pip­ar.

v

Hráefninu er raðað eins og myndin sýnir á tortilluna.
Hrá­efn­inu er raðað eins og mynd­in sýn­ir á tortill­una. mbl.is/​Anna Björk
Tilbúnir eggja-pakkar.
Til­bún­ir eggja-pakk­ar. mbl.is/​Anna Björk
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert