Grænmetisbaka með piparosti

Það er ekki annað hægt en að elska bökur.
Það er ekki annað hægt en að elska bökur. mbl.is/Svava Gunnarsdóttir

Bök­ur eru sér­lega snjall mat­ur því hægt er að hafa þær í mat­inn hvenær dags sem er. Þessi upp­skrift hér tikk­ar í flest box þegar kem­ur að bragðgæðum og al­menn­um huggu­leg­heit­um enda kem­ur hún úr smiðju Svövu Gunn­ars á Ljúf­meti og lekk­er­heit.

Þessi verður án efa prófuð á mörg­um heim­il­um í kvöld. Verði ykk­ur sann­ar­lega að góðu og munið að hægt er að nota af­gang­inn í nesti á morg­unn. 

Ábyggilega margir sem láta sig dreyma um þessa dásemd.
Ábyggi­lega marg­ir sem láta sig dreyma um þessa dá­semd. mbl.is/​Svava Gunn­ars­dótt­ir

Grænmetisbaka með piparosti

Vista Prenta

Græn­met­is­baka með pip­arosti

Fyr­ir 4-5

  • böku­botn (hér er upp­skrift en einnig er hægt að kaupa til­búið deig)
  • 1 rauð paprika
  • 1 græn paprika
  • 1/​2 púrru­lauk­ur
  • 1 lít­ill spergilkáls­haus
  • krydd, t.d. ít­alskt sal­at­skrydd
  • 5 kokteil­tóm­at­ar
  • 3 egg
  • 2,5 dl rjómi
  • 1 box rif­inn pip­arost­ur (100 g)
  • paprikukrydd
  • salt
  • pip­ar
  • rif­inn ost­ur

Aðferð:

Hitið ofn í 175°. Setjið böku­deigið í böku­form (eða smellu­form), stingið aðeins yfir botn­inn með gaffli og for­bakið í 10 mín­út­ur.

Skerið paprik­ur, púrru­lauk og spergilkál smátt og steikið á pönnu þar til hef­ur fengið fal­leg­an lit og farið að mýkj­ast. Kryddið eft­ir smekk (ég notaði ít­alskt sal­at­skrydd). Setjið græn­metið yfir for­bakaða böku­skel­ina. Skerið tóm­at­ana í tvennt og setjið yfir græn­metið.

Hrærið sam­an egg og rjóma. Bætið pip­arost­in­um sam­an við og kryddið með paprikukryddi, salti og pip­ar. Hellið blönd­unni yfir græn­metið og setjið vel af rifn­um osti yfir. Bakið við 175° í 35 mín­út­ur.

Lekkert bæði í kvöldverð jafnt sem hádegisverð/dögurð.
Lekk­ert bæði í kvöld­verð jafnt sem há­deg­is­verð/​dög­urð. mbl.is/​Svava Gunn­ars­dótt­ir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert