Uppskift af rifjum sem ærir óstöðuga

Sjúklega girnileg rif sem eru verðugt helgarverkefni fyrir matgæðinga.
Sjúklega girnileg rif sem eru verðugt helgarverkefni fyrir matgæðinga. mbl.is/Food52

Það er nú ein­mitt mark­mið okk­ar og þessi upp­skrift er ekk­ert sér­lega hefðbund­in ef út í það er farið. Hér leik­ur kaffi stór hlut­verk í bland við magnaða krydd­blöndu og svo auðvitað úr­vals hrá­efni. Við gef­um ykk­ur frjáls­ar hend­ur með af hvaða dýra­teg­und rif­in eru en hér á landi er alla jafna auðveld­ast að verða sér út um svinarif.

Þessi upp­skrift er verðugt laug­ar­dags­verk­efni og því ekki seinna vænna en að skella sér út í búð byrja að und­ir­búa.

Uppskift af rifjum sem ærir óstöðuga

Vista Prenta

Upp­skift af rifj­um sem ærir óstöðuga

  • 80 gr vel ristaðar kaffi­baun­ir
  • 60 ml svört pip­ar­korn
  • 4 msk sjáv­ar­salt + auka
  • 4 msk reykt sjáv­ar­salt
  • 2 msk reykt paprikukrydd
  • Ólífu­olía
  • 2-2,5 kg rif
  • Dijon sinn­ep (val­frjálst)

Aðferð:

  1. Hitið ofn­inn í 260 gráður.
  2. Malið kaffi­baun­irn­ar mjög gróft og leggið til hliðar. Malið einnig pip­ar­korn­in og sjáv­ar­saltið – ekki of mikið þó. Blandið kaff­inu sam­an við saltið og pip­ar­inn og bætið reyktu paprik­unni sam­an við.
  3. Leggið rif­in á smjörpapp­ír og penslið með ólífu­olíu. Stráið síðan krydd­blönd­unni yfir. Nuddið með hönd­un­um. Kjötið á að hafa þykkt lag af krydd­hjúpi á sér.
  4. Grillið í ofn­in­um í tíu mín­út­ur og takið svo út. Lækkið hit­ann í 150 gráður.
  5. Setjið rif­in á tvö­falt lag af álp­app­ír. Vefjið rif­in inn í álp­app­ír­inn og passið upp á að hvergi sé rifa. Setjið alla pakk­ana inn í ofn­inn á ofn­grind og skerið nokk­ur lít­il göt neðst á hvern pakka til þess að vökvinn geti lekið út. Setjið ofnskúffu und­ir til að grípa vökv­ann. Eldið í fjór­ar klukku­stund­ir.
  6. Eft­ir fjór­ar klukku­stund­ir skal lækka hit­ann niður í 100 gráður og elda þannig næstu 7 tím­ana. Á þessu tíma­bili má vel at­huga ástand kjöts­ins einu sinni eða tvisvar. Ef kjötið fell­ur ekki af bein­un­um eft­ir 7 tíma skal hækka hit­ann í 150 gráður og elda kjötið í 1-2 tíma til viðbót­ar.
  7. Þegar rif­in eru til­bú­in skal sáldra sjáv­ar­salti yfir þau og borða með ögn af úr­vals Dijon sinn­epi.  

Upp­skrift: Food52

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert