Grillaður “Pulled pork” borgari

Sjúklega girnilegur borgari.
Sjúklega girnilegur borgari. mbl.is/Food Network Magazine

Ef það er ein­hvern tím­ann til­efni til að grilla þá er það núna. Hér gef­ur að líta upp­skrift sem fær hjartað til að slá hraðar. Um er að ræða grillaðan “pul­led pork” borg­ara sem út­leggst á ís­lensku sem hæg­eldað og/​eða mauk­soðið svína­kjöt. Bæði er hægt að út­búa kjötið á eig­in spýt­ur eða kaupa það út í búð. Hvort held­ur sem er þá erum við með tíma­móta upp­skrift en gætið þess að hún er ætluð fyr­ir 12 manns.

Grillaður “Pulled pork” borgari

Vista Prenta

Grillaður “Pul­led pork” borg­ari

Fyr­ir 12 manns

Fyr­ir svína­kjötið

  • 6 msk paprikukrydd
  • 3 msk hrá­syk­ur
  • 1 msk lauk­duft
  • sjáv­ar­salt og nýmalaður pip­ar
  • 4-5 kg mauk­soðið svína­kjöt
  • 12 ham­borg­ara­brauð af betri gerðinni
  • hrásal­at

BBQ sósa

  • 500 ml tóm­atsósa
  • ¼ bolli ljós púður­syk­ur
  • ¼ bolli hrá­syk­ur nýmalaður pip­ar
  • 1 ½ tsk lauk­duft
  • 1 ½ sinn­epskrydd (e. dry mu­st­ard)
  • 2 msk fersk­ur sítr­ónusafi
  • 2 msk Worchesters­hire sósa
  • 120 ml epla­e­dik
  • 2 msk síróp

Aðferð:

Blandið sam­an paprikukrydd­inu, sykri og lauk­dufti í skál. Setjið 3 msk af krydd­blönd­unni í aðra skál og bætið við 2 msk af salti og 3 msk af pip­ar. Nuddið vel á kjötið. Hyljið með plast­filmu og látið standa. Geymið af­gang­inn af krydd­inu.

Leggðu reykt­an spæni í bleyti í 15 mín­út­ur eða svo. Passið að bleyta spæn­inn alls ekki of mikið ell­egar kem­ur of mik­ill reyk­ur.

Kveikið upp í grill­inu. Ef þið eruð að nota gasgrill þá skal stilla á frem­ur lág­an hita en ef kol­in eru notuð skal bíða þar til þau eru orðin nán­ast grá og dreifa þá vel úr þeim.

Eldið svína­kjötið í sex klukku­stund­ir eða svo. At­hugið að þetta á við ef þið kaupið ómeðhöndlað svína­kjöt ef ef þið keyptuð kjötið til­búið út í búð sleppið þið þess­um hluta.

BBQ sós­an: Blandið sam­an tóm­atsósu, 240 ml af vatni, sykri (báðum gerðum) 1 ½ tsk pip­ar, lauk- og sinn­epskryddið, sítr­ónusafa, Worchesters­hire sósu, edik, sírópi og 1 msk af af­gangs krydd­blönd­unni í pott. Látið suðuna koma upp og látið sós­una síðan malla í tvo tíma eða svo. Látið kólna og hitið svo aft­ur á grill­inu þegar komið er að því að nota hana.

Svína­kjötið: Rífið kjötið niður og veltið því vel upp úr vökv­an­um sem kem­ur úr kjöt­inu þegar það er rifið.

Setjið borg­ar­ann sam­an: Hitið brauðið á grill­inu, setjið rifna svína­kjötið ofan á, því næst slatta af BBQ sós­unni og að lok­um hrásal­at.

Auðveld­ari út­gáfa: Kaupið kjötið til­búið, hitið það á grill­inu og kryddið með krydd­blönd­unni. Hér eruð þið vænt­an­lega bara að gera 2-4 borg­ara þannig að minnkið krydd­magnið sem því nem­ur. Farið að örðu leiti eft­ir aðferðinni hér að ofan. Kaupið sós­una til­búna út í búð og hrásal­atið líka.

Snilld­ar­ráð Mat­ar­vefs­ins: Gerðu sós­una og þó þið séuð bara með 2-4 í mat þá skuluð þið gera full­an skammt og eiga af­gang­inn til góða. Sós­an geym­ist vel í kæli og þar sem grill­sum­arið er rétt að byrja mun hún koma að góðum not­um í sum­ar.

Upp­skrift: Food Network Magaz­ine

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert