Nágrannarnir halda að ég sé galin

Náttföt eru fyrirtaks morgunverðarklæðnaður. Tobba elskar að drekka morgunkaffið í …
Náttföt eru fyrirtaks morgunverðarklæðnaður. Tobba elskar að drekka morgunkaffið í náttfötunum úti í garði. mbl.is/

Tobba Marinós­dótt­ir, rit­höf­und­ur og mat­gæðing­ur, gef­ur í dag út sína sjöttu bók, Gleðilega fæðingu. Bók­ina skrif­ar hún með Hildi Harðardótt­ur fæðing­ar­lækni og Aðal­birni Þor­steins­syni, gjör­gæslu- og svæf­ing­ar­lækni. Bók­in var rúm­lega þrjú ár í skrif­um og er að sögn Tobbu gull­moli fyr­ir verðandi for­eldra. 

„Þetta er í raun eina bók­in sem seg­ir ná­kvæm­lega frá því sem ger­ist inni á fæðing­ar­stof­unni. Hvað er töng, til hvers er hún notuð? Er mænurót­ar­dreif­ing hættu­leg? Hvað er fæðingaráætl­un? Hvað stend­ur mér til boða í fæðing­unni? Þetta er bara brot af þeim spurn­ing­um sem bók­in svar­ar svo fag­lega en um leið skemmti­lega með skýr­ing­ar­mynd­um og per­sónu­leg­um reynslu­sög­um,“ seg­ir Tobba sem fagnaði því að fá fyrsta ein­takið í hend­urn­ar með því að baka pönnu­kök­ur. 

„Við mæðgur gerðum vel við okk­ur og skellt­um í ban­anapönnu­kök­ur sem við borðuðum úti á palli á nátt­föt­un­um. Ná­grann­arn­ir hafa lík­lega haldið að ég væri gal­in að bera hálf­an ís­skáp­inn út klukk­an 8 um morg­un en það var sól og lífið er núna,“ seg­ir Tobba sem mæl­ir með þess­um hollu barn­vænu pönnu­kök­um sem taka stutta stund í gerð en veita mikla gleði.

Nágrannarnir halda að ég sé galin

Vista Prenta

Ban­anapönns­ur á mín­út­um 
Sirka 4 stór­ar 

2 vel þroskaðir ban­an­ar 
3 væn egg 
1 bolli hafr­ar 
1 msk. mjólk 
1 tsk. kanill 
1/​3 tsk. salt 

Allt sett í bland­ara og blandað uns kekkjalaust. Ef vill má vel bæta við nokkr­um blá­berj­um og hræra þau var­lega sam­an við. 

Steikið á pönnu upp úr olíu eða smjöri í sirka 2 mín­út­ur á hvorri hlið eða þar til gyllt­ar. 

Ég toppa þær svo með grískri jóg­úrt, hun­angi, blá­berj­um, granatepl­um og heima­gerðu granóla. Einnig má nota syk­ur­lausa sultu í stað hun­angs. Guðdóm­legt! 

Best er að borða þær á nátt­föt­un­um úti í garði! 

Fallegt, heilnæmt og hollt! Hver segir nei takk við þessum …
Fal­legt, heil­næmt og hollt! Hver seg­ir nei takk við þess­um morg­un­verði? mbl.is/​TM
Gleðilega fæðingu er sjötta bók Tobbu en hún skrifar bókina …
Gleðilega fæðingu er sjötta bók Tobbu en hún skrif­ar bók­ina með Aðal­birni og Hildi en hug­mynd­ina átti Hild­ur sem er einn fremsti fæðing­ar­lækn­ir lands­ins.
Dúndur morgunverðarbomba.
Dúnd­ur morg­un­verðar­bomba. mbl.is/​TM
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert