Tikka masala kjúklingur sem börnin elska

Fátt er betra en góður indverskur matur.
Fátt er betra en góður indverskur matur. mbl.is/Hanna Þóra

Tikka masala er ákaf­lega vin­sælt og hér gef­ur að líta upp­skrift frá Hönnu Þóru sem hún seg­ir að sé ákaf­lega barn­vænn. Hann sé þannig séð ekki flók­inn í fram­kvæmd og gott sé að bjóða upp á raitu og tortill­ur með. 

Tikka masala kjúklingur sem börnin elska

Vista Prenta

Tikka masala kjúk­ling­ur

Fyr­ir 4 - 5

Mar­in­er­ing

  • 1 dl jóg­úrt
  • 2 tsk garam masala
  • 2 tsk paprikukrydd
  • ½ tsk svart­ur pip­ar
  • ½ tsk cayenne pip­ar
  • ½ tsk kórí­and­er
  • Kjúk­ling­ur
  • 600 g kjúk­linga­lund­ir eða bring­ur
  • Olía og klípa af smjöri til steik­ing­ar

Sósa

  • 1 tsk cum­in fræ
  • 2 msk olía og 1 msk smjör
  • 1 gul­ur lauk­ur – saxaður
  • 4 – 5 hvít­lauksrif – söxuð eða pressuð
  • ½ – 1 rauður chil­ipip­ar – fræhreinsaður og saxaður
  • 1 msk rif­inn engi­fer
  • 1 krukka maukaðir tóm­at­ar (425 g)
  • ½ dl tóm­at­púrra
  • 8 – 10 litl­ir vel þroskaðir tóm­at­ar eða 2 – 3 stór­ir
  • 1 tsk syk­ur
  • 1 tsk garam masala
  • ½ tsk kórí­and­er
  • ½ tsk túr­merik
  • 1 dl rjómi
  • Salt og pip­ar
  • Fersk­ur kórí­and­er

Raita

  • 2 dl jóg­úrt/​grísk jóg­úrt eða ab-mjólk
  • Salt/​pip­ar
  • 1 – 2 pressuð hvít­lauksrif – má sleppa
  • Biti af gúrku – skor­inn í litla bita – má sleppa
  • Ögn af múskati – rifnu

Mar­in­er­ing

  1. Öllu blandað sam­an í skál og kjúk­ling­ur­inn lagður í – látið mar­in­er­ast í a.m.k. 2 klukkut­stund­ir eða haft í kæli yfir nótt
  2. Kjúk­ling­ur og sósa
  3. Ofn­inn hitaður í 200°C.
  4. Kjúk­ling­ur sett­ur í ofnskúffu og grillaður í ofn­in­um í 13 – 20 mín­út­ur (fer eft­ir hvort notaðar eru lund­ir eða bring­ur) – eða þangað til hann er steikt­ur í gegn.  Ég sný bit­un­um við þegar steik­ing­ar­tím­inn er hálfnaður
  5. Cum­in hitað á þurri pönnu í nokkr­ar mín­út­ur. Olía, lauk­ur, hvít­lauk­ur, chil­ipip­ar og engi­fer steikt í 5 – 10 mín­út­ur á meðal­hita
  6. Tómöt­um (fersk­um og maukuðum) og tóm­at­púrru bætt við og látið sjóða í u.þ.b. 15 mín­út­ur
  7. Sykri, garam masala, kórí­and­er, túr­merik og rjóma bætt við – saltað og piprað
  8. Kjúk­ling­ur­inn sett­ur út í sós­una – hitað að suðu og borið fram

Meðlæti

  • Soðin hrís­grjón, raita, sal­at og tortill­ur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert