Hafrabomban sem einkaþjálfarinn elskar

Anna Eiríks og hafrabomban sem hún elskar.
Anna Eiríks og hafrabomban sem hún elskar. mbl.is/samsett mynd

Hver elsk­ar ekki létt­an og fljót­leg­an morg­un­verð þegar tím­inn er af skorn­um skammti. Morg­un­verð sem er dá­sam­lega bragðgóður og líka svo merki­lega holl­ur.

Það er Anna Ei­ríks­dótt­ir einkaþjálf­ari sem á þessa upp­skrift en hún er af­kap­lega hrif­in af hon­um. „Þegar ég er í tímaþröng á morgn­ana þá finnst mér mjög gott að henda í þenn­an þeyt­ing sem ég kalla hafra­bombu en hann inni­held­ur haframjöl sem ger­ir þeyt­ing­inn trefja­rík­ari,“ seg­ir Anna og bæt­ir við að hægt sé að leika sér með upp­skrift­ina fram og til baka.

„Ég hvet ykk­ur til þess að prófa þenn­an dá­sam­lega þeyt­ing," seg­ir Anna og ef þið viljið hugsa enn bet­ur um lík­amann þá er hún að byrja með nám­skeið inn á heimasíðunni sinni sem er sér­sniðið fyr­ir alla upp­tekna en það heit­ir ein­mitt Fit21 eða í form á 21 mín­útu. Ljóst er að tíma­skort­ur er eng­in af­sök­un leng­ur enda Anna af­burðarfl­ink í að setja sam­an aðgengi­leg pró­grömm sem all­ir ráða við en skila úr­vals ár­angri.

Hafrabomban sem einkaþjálfarinn elskar

Vista Prenta

Hafra­bom­b­an sem einkaþjálf­ar­inn elsk­ar

  • 1/​2 bolli fros­in jarðaber
  • 1/​2 bolli fros­in blá­ber
  • 1 bolli rísmjólk með vanillu eða möndl­umjólk
  • 1/​2 bolli fínt haframjöl
  • 1 lít­ill ban­ani

Aðferð:

Allt sett í bland­ara og hrært vel sam­an, ein­fald­ara ger­ist það ekki!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert