LKL ofnbakaður þorskur í rjómasinnepssósu

mbl.is/

Þar sem senn fer að bresta á með sumri er ljóst að land­inn er afar meðvitaður um kol­vetnainn­töku sína og lág­kol­vetna­upp­skrift­ir njóta mik­illa vin­sælda.

Hér er ein skot­held og afar góm­sæt úr smiðju Einn, tveir og elda enda hafa LKL pakk­arn­ir frá þeim notið mik­illa vin­sælda. 

LKL ofnbakaður þorskur í rjómasinnepssósu

Vista Prenta

Ofn­bakaður þorsk­ur í rjómasinn­epssósu

Fyr­ir tvo

  • 360 g þorsk­hnakk­ar
  • 300 g brokkólí
  • 1 lauk­ur
  • 60 gr kapers
  • 250 ml rjómi
  • 50 g dijon sinn­ep
  • 100 g sal­at
  • 1 tóm­at­ur

Aðferð:

  1. Skerið brokkólíið í munn­bita­stærðir og saxið lauk­inn. Steikið á vel heitri pönnu upp úr ólífu­olíu í um það bil 5 mín­út­ur.
  2. Bætið kapers á pönn­una og steikið í 2 mín­út­ur til viðbót­ar, setjið síðan græn­metið í botn­inn á eld­föstu móti.
  3. Leggið þorsk­bit­ana á græn­metið ásamt klípu af salti og pip­ar.
  4. Blandið rjóma og dijon sinn­epi sam­an og hellið yfir þorskinn og græn­metið. Bakið í ofni í 180°c í 20 mín­út­ur.
  5. Skerið tóm­at­inn í litla bita og blandið sam­an við sal­atið, berið fram með fisk­rétt­in­um, njótið vel!
mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert