Lúxus spaghetti bolognese

Löðrandi lúxús hér á ferðinni.
Löðrandi lúxús hér á ferðinni. mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Spaghetti bolog­nese er ein af þess­um klass­ísku máltíðum sem all­ir elska - jafnt ung­ir sem aldn­ir. Hann hef­ur sam­einað fjöl­skyld­ur í gegn­um árin og mun halda því ótrauður áfram. Hér gef­ur að líta sér­staka lúxús út­gáfu af hon­um frá Berg­lindi Guðmunds á Gul­ur, rauður, grænn og salt.

Við erum afar spennt fyr­ir þess­ari út­gáfu enda ekki á hverju degi sem maður sér bolog­nese upp­skrift sem inni­held­ur bæði rauðvín og Worchesters­hire sósu.

Lúxus spaghetti bolognese

Vista Prenta

Lúx­us spaghetti bolog­nese
Fyr­ir 4

  • 2 pok­ar ferskt spaghetti
  • 500 g nauta­hakk
  • 1 lauk­ur
  • 2 hvít­lauksrif
  • 1 dós saxaðir tóm­at­ar
  • 1 lít­il dós tóm­at­púrra
  • 2 dl rauðvín
  • 1 msk bal­sa­mik edik
  • 4 msk worcesters­hiresósa (má sleppa)
  • 1 tsk græn­metiskraft­ur
  • 3 tsk reykt paprikukrydd
  • 1 tsk múskat
  • 3 lár­viðarlauf
  • salt og pip­ar
  • fersk basilíka
  • par­mesanost­ur

Aðferð:

  1. Setjið olíu á pönnu og steikið lauk og hvít­lauk.
  2. Bætið nauta­hakk­inu sam­an við og hrærið reglu­lega þar til nauta­hakkið hef­ur brún­ast.
  3. Setjið öll hrá­efn­in sam­an við og hrærið vel sam­an. Látið malla í 30 mín til klukku­stund.
  4. Sjóðið pastað skv leiðbein­ing­um á pakk­ingu. Hellið í skál og bætið kjötsós­unni sam­an við.
  5. Stráið saxaðri basilíku og ríf­legu magni af par­mes­an yfir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert