Ómótstæðilegur kjúklingaréttur með chilí rjómasósu og stökku beikoni

Fullkomin kjúklingaréttur sem á alltaf vel við.
Fullkomin kjúklingaréttur sem á alltaf vel við. mbl.is/Berglind Guðmundsdóttir

Í ljósi þess að veðrið held­ur okk­ur í helj­ar­greip­um er eina vitið að elda eitt­hvað ómót­stæðilegt í kvöld­mat­inn. Hér kem­ur rétt­ur sem fell­ur full­kom­lega í flokk­inn „hugg­un­ar­fæði“ eða "com­fort-food" eins og það myndi kall­ast á ensku. Smá kjúlli, dass af rjóma og allskon­ar gúm­melaði með.... full­komið á degi sem þess­um.

Það er Berg­lind Guðmunds á Gul­ur, rauður, grænn og salt sem á heiður­inn að þess­um rétti.

Ómótstæðilegur kjúklingaréttur með chilí rjómasósu og stökku beikoni

Vista Prenta

Ómót­stæðileg­ur kjúk­linga­rétt­ur með chilí rjómasósu, ban­ana sneiðum og stökku bei­koni
Fyr­ir 4

  • 900 g kjúk­linga­bring­ur
  • 200 g bei­kon
  • 2 ban­an­ar
  • 200 ml chil­ísósa, extra heit
  • 500 ml rjómi
  • 1.5 dl salt­hnet­ur
  • salt
  • pip­ar

Aðferð:

  1. Blandið chil­ísósu og rjóma sam­an í skál og blandið vel sam­an.
  2. Steikið bei­kon þar til stökkt og skerið í bita.
  3. Skerið kjúk­ling­inn í bita og kryddið með salti og pip­ar. Hitið olíu á pönnu og steikið kjúk­ling­inn á pönn­unni.
  4. Setjið kjúk­ling­inn í ofn­fast mót og bei­kon­bit­ana yfir. Skerið ban­ana í sneiðar og setjið yfir.
  5. Hellið chilí rjómasós­unni yfir allt og stráið salt­hnet­um yfir allt.
  6. Setjið í 200°c heit­an ofn í 15 mín­út­ur.

Í þenn­an rétt er hægt er að kaupa til­bú­inn kjúk­ling­inn og rífa niður til að flýta fyr­ir.

mbl.is
Fleira áhugavert

Matur »

Fleira áhugavert