„Ég er bú­inn að vera með Sikiley á heil­an­um síðan ég var að þvæl­ast þar sum­arið 2016. Þar var allt nýtt, ég gisti á sveita­bæj­um og lærði alls kon­ar í mat­reiðslu, lærði meðal ann­ars að elda sverðfisk, gera pist­as­íu og sard­ínu pestó (sem er viðbjóður BTW) og lærði að meta græn­met­ispizz­ur."

Þröst­ur held­ur úti hinu stór­skemmti­lega mat­ar­bloggi Töddi bras­ar og þar kenn­ir ým­issa bráðsniðugra grasa...

Sikileyjarpítsa með pistasíum og chili bearnaise

Vista Prenta

Sikileyj­ar­baka með pist­así­um og chili be­arnaise

Í pizza­deig fyr­ir tvær bök­ur nota ég:

  • 7 dl stein­malað hveiti
  • Þurr­ger
  • Sjáv­ar­salt
  • Hvít­laukskrydd…og kannski smá chili
  • 3 msk ólívu­olíu
  • 2 msk hun­ang
  • 250 ml dökk­ur bjór

Mér finnst geggjað að nota dökk­an bjór í staðinn fyr­ir vatn, það kem­ur ein­hver keim­ur í deigið. Svo má krydda deigið að vild, allt sem er ít­alskt finnst mér vera gott gott.

Ég hnoða al­veg heil­an hell­ing og leyfi svo deig­inu að hefa sig í volgu vatni með klút yfir, af því mamma ger­ir það alltaf.

Á þessa pizzu fer síðan:

  • Chilli og hvít­lauk­spestó frá Jamie Oli­ver
  • Pizza­ost­ur
  • Þistil­hjörtu (rif­in gróft)
  • Græn­ar ólív­ur
  • Me­djool döðlur
  • Mozzar­ella kúl­ur (tætt­ar)
  • Muld­ar pist­así­ur

Á topp­inn:

  • Rucola
  • Li­mes­afi
  • Meiri muld­ar pist­así­ur

Ég keypti þessa for­láta hnetumuln­ings­vél í Tiger á 600kr sem virk­ar bara svona ofsa­lega vel og er jafn­vel pínu fal­leg.

Það skipt­ir mig miklu máli að þetta líti fal­lega út, álegg­inu sé raðað huggu­lega á bök­urn­ar og þær kalli á mig.

Bök­urn­ar eru svo bakaðar við 200°C í ca 15 mín­út­ur.

Svo skola ég rucola­sal­at og dreifi fal­lega yfir, li­mes­afi er kreist­ur yfir rucolað…ok ég lýg, saf­inn er úr brúsa, svo bæti ég á pist­así­urn­ar, aldrei nóg af pist­así­um.

Af því að þetta allt er ekki nóg þá gluða ég chili be­arnaise yfir og holyguaca­mole við erum sko að nálg­ast eitt­hvað.