Plokkfiskur Nigellu

Plokkfiskur að hætti Nigellu er eitthvað sem enginn má láta …
Plokkfiskur að hætti Nigellu er eitthvað sem enginn má láta framhjá sér fara. mbl.is/Nigella Lawson (nigella.com)

Plokk­fisk­ur er einn af þjóðarrétt­um Íslend­inga enda herra­manns mat­ur og elskaður af jafnt ung­um sem öldn­um. Það er Mat­ar­vefn­um því mikið gleðiefni að deila þess­ari upp­skrift eft­ir sjálfa Nig­ellu Law­son þar sem hún reyn­ir við þenn­an klass­íska ís­lenska rétt. 

Hún fer nokkuð vel með hann og held­ur sig við grunn atriðin. Hún bæt­ir þó við soðnum eggj­um sem við skilj­um ekk­ert í en þeir sem það vilja sleppa þeim bara. 

En við hvetj­um ykk­ur til að prófa og endi­lega segið okk­ur hvað ykk­ur finnst. 

Plokk­fisk­ur Nig­ellu

Vista Prenta

Plokk­fisk­ur Nig­ellu

  • 1½ kg for­soðnar kart­öfl­ur
  • 150 g smjör
  • 1½ kg ýsa
  • 500 ml nýmjólk
  • 3 lár­viðarlauf
  • Fersk­ur svart­ur pip­ar
  • 125 grams frozen peas
  • 75 g hveiti
  • 125 g óðal­sost­ur (rif­inn) (gra­ted)
  • 3 harðsoðin egg

Aðferð:

  1. Skerið kart­öfl­un­ar í bita og stappið þær sam­an við 75 g af smjöri. Saltið og piprið eft­ir smekk.
  2. Setjið fisk­inn í stóra pönnu með mjólk, lár­viðarlauf­um og slatta af svört­um pip­ar. Látið suðuna koma upp og lækkið þá strax und­ir. Látið fisk­inn sjóða á lág­um hita þar til hann er geg­neldaður. Takið þá fisk­inn af pönn­unni og hellið vökv­an­um í skál. Fjar­lægið lár­viðarlauf­in.
  3. Hitið ofn­inn í 170 gráður.
  4. Bræðið af­gang­inn af smjör­inu á pönnu og hrærið hveit­inu sam­an við. Pískið vel og passið að hveitið hlaupi ekki í kekki. Helli mjólk­ur­blönd­unni sam­an við og látið suðuna koma upp. Við það á sós­an að þykkna. Látið malla í tvær mín­út­ur eða svo og blandið þá ost­in­um sam­an við.
  5. Takið fisk­inn í sund­ur í munn­bita­stóra bita og setjið í hitaþolið mót. Dreifð jafnt úr hon­um. Hellið sós­unni yfir. Skerið egg­in í sneiðar og raðið snyrti­lega yfir fisk­inn. Að lok­um setjið þið kart­öflu­stöpp­una yfir og dreifið vel úr með sleif.
  6. Áður en rétt­ur­inn fer inn í ofn er gott að sáldra ögn af rifn­um osti yfir. Bakið í ofni í 20-40 mín­út­ur. Hægt að borða annað hvort heitt eða kalt.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert