LKL ofnbakaður lax með spínati, beikoni og parmesan

Lágkolvetna ofnbakaður lax með spínati, beikoni og parmesan
Lágkolvetna ofnbakaður lax með spínati, beikoni og parmesan mbl.is/Einn, tveir & elda

Fisk­ur stend­ur ávallt fyr­ir sínu og hér gef­ur að líta upp­skrift sem er ein­stak­lega lyst­ug. Hér höf­um við bæði fisk og kjöt og má eig­inelga segja að þessi upp­skrift sé veisla fyr­ir bragðlauk­ana - svo fjöl­breytt er pall­ettt­an. 

Upp­skrift­in kem­ur úr smiðju Einn, tveir og elda enda hafa LKL pakk­arn­ir frá þeim notið mik­illa vin­sælda. 

LKL ofnbakaður lax með spínati, beikoni og parmesan

Vista Prenta

LKL ofn­bakaður lax með spínati, bei­koni og par­mes­an

Fyr­ir tvo

  • 400 g lax 
  • 8 sneiðar bei­kon
  • 2 tsk laxa krydd­blanda
  • 40 g kasjúhnet­ur
  • 40 g par­mes­an­flög­ur eða rif­inn par­mes­an
  • 8 stk kirsu­berjatóm­at­ar 
  • 100 g spínat

Leiðbein­ing­ar:

Hitið ofn­inn í 180°c. Leggið laxa­bit­ana í eld­fast mót ásamt 2 msk af ólífu­olíu og krydd­blönd­unni. Bakið lax­inn í um það bil 15 mín­út­ur eða þar til fulleldaður.
Skerið bei­konið í litla bita og kirsu­berjatóm­at­ana í tvennt.
Steikið bei­konið á vel heitri pönnu upp úr 1 msk af ólífu­olíu þar til orðið vel stökkt.
Blandið sam­an í skál spínatinu, par­mes­an ost­in­um, tómöt­un­um og bei­kon­inu ásamt fit­unni af bei­kon­inu og hrærið létt sam­an.
Þegar lax­inn er til­bú­inn skal bera hann fram ásamt spínatblönd­unni, njótið vel!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert